Ratsjáin á Reykjanesi
Rekur þú metnaðarfullt ferðaþjónustufyrirtæki og vilt gera enn betur?
Ratsjáin er þróunar- og nýsköpunarverkefni ætlað stjórnendum í starfandi ferðaþjónustufyrirtækjum. Undir leiðsögn sérfræðinga kynnast þátttakendur verkfærum sem efla þá sem stjórnendur, spegla sig í reynslu annarra fyrirtækja og efla tengslanetið. Ratsjáin er samstarfsverkefni Íslenska ferðaklasans og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og unnið með stuðningi af Byggðaáætlun. Þetta misserið verður Ratsjáin á Reykjanesi og í Þingeyjarsýslum og komast allt að 8 fyrirtæki að á hvorum stað fyrir sig.
Umsóknarfrestur til og með 20. september – Allar upplýsingar um verkefnið má finna á ratsjain.is
Frekari upplýsingar veita Ásta Kristín Sigurjónsdóttir hjá Íslenska Ferðaklasanum á netfanginu asta.kristin@icelandtourism.is og Selma Dögg Sigurjónsdóttir hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands á netfanginu selma@nmi.is