fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Opið fyrir umsóknir í Sóknarsjóð fyrir smærri fyrirtæki í Grindavík

Umsóknarfrestur rennur út 10. september

Byggðastofnun auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Sóknarsjóð fyrir smærri fyrirtæki í Grindavík. Tilgangur Sóknarsjóðs er að styðja við smærri atvinnurekendur í Grindavík með það að markmiði að horfa megi til framtíðar í rekstri.

Umsóknarfrestur er til kl. 16:00, 10. september 2026

Upphaflega voru 180 m.kr. sett í Sóknarsjóð. Í nóvember 2025 fór fram fyrri úthlutun úr sjóðnum og námu samþykktir styrkir 130,4 m.kr. Verður nú eftirstöðvum af þeim fjármunum sem ráðstafað var í verkefnið úthlutað.

Í umsóknum skal m.a. koma fram til hvers styrkurinn er ætlaður og hvernig hann muni koma til með að nýtast til áframhaldandi reksturs.  

Styrkhæf eru fyrirtæki sem voru með starfsemi í Grindavík 10. nóvember 2023 og fullnægja að öðru leyti skilyrðum reglna um Sóknarsjóð.

Styrkur er veittur í eftirfarandi tilgangi:

  1. Styrkur til kaupa á búnaði eða tækjum til að efla starfsemi í Grindavík.
  2. Styrkur til að gera breytingar á rekstri í því skyni að styrkja stoðir núverandi starfsemi.

Til þess að geta átt rétt á styrk úr sjóðnum skal umsækjandi uppfylla öll eftirfarandi skilyrði:

  1. Hafa verið með starfsemi í Grindavík 10. nóvember 2023.
  2. Það hafi a.m.k. einn starfsmann á launaskrá þegar umsókn er skilað.
  3. Velta vegna ársins 2023 hafi verið undir 250 milljónum kr.
  4. Umsækjandi sé ekki í vanskilum með opinber gjöld.
  5. Bú umsækjanda hafi ekki verið tekið til gjaldþrotaskipta.

Umsækjendur geta verið einstaklingar eða fyrirtæki. Hér má finna Reglur um úthlutun Byggðastofnunar á framlögum úr Sóknarsjóði.

Umsóknum skal skilað í rafrænum umsóknarformi í Umsóknargátt Byggðastofnunar.

 Nánari upplýsingar um styrki úr sóknarsjóð veitir Pétur Friðjónsson, verkefnastjóri Sóknarsjóðs (peturf@byggdastofnun.is /sími 455 5400)