fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

51. aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum

51. aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum verður haldinn föstudaginn 11. september 2026. Fundurinn verður haldinn í golfskálanum í Leiru. Öll gögn fundarins er að finna hér en sveitarstjórnarfólk og boðsgestir eru minntir á að skrá sig á fundinn í gegnum tölvupóstinn sem var sendur út til þeirra.

Mikilvægt er að allir fulltrúar svari skráningunni, hvort sem þeir geta mætt eða ekki.
Samkvæmt samþykktum SSS þarf tilskilinn fjöldi fulltrúa að vera mættur svo fundurinn sé ályktunarbær. Ef aðalfulltrúi á ekki heimangengt þarf hann því sjálfur að boða varamann sinn og láta SSS vita hver mætir í hans stað. Hægt er að skrá upplýsingar um varamann beint í skráningarformið.


Vinsamlega tryggið jafnframt að varamaðurinn skrái sig sjálfur á fundinn.
Skráningarfrestur er miðvikudaginn 9. september.