Opið fyrir umsóknir í Tækniþróunarsjóð
Tækniþróunarsjóður hefur opnað fyrir umsóknir í styrktarflokkunum Sproti, Vöxtur og Markaður. Umsóknarfrestur rennur út þann 16. september 2024, kl. 15:00.
- Sproti er fyrir ung nýsköpunarfyrirtæki og frumkvöðla og hefur það að markmiði að styðja við verkefni á byrjunarstigi.
- Vöxtur er fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og er ætlaður til að styrkja þróunarverkefni sem eru komin af frumstigi hugmyndar og er Sprettur öndvegisstyrkur innan Vaxtar.
- Markaður er markaðsstyrkur til fyrirtækja sem skiptist í tvo ólíka flokka: Markaðsþróun og Markaðssókn. Þessum flokkum er ætlað að styðja við fyrirtæki á mismunandi stigum í undirbúningi afurðar á markað.
Fyrirhugað er að halda kynningarfundi seinna í ágúst og verða þeir auglýstir um leið og dagsetningar liggja fyrir.
Sótt er um rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís.
Nánari upplýsingar á síðu Tækniþróunarsjóðs.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel reglur sjóðsins: