fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

REGENERATE samstarfsaðilar hittust í Finnlandi

Markaðsstofa Reykjaness stóð fyrir samstarfsfundi Interreg REGENERATE verkefnisins sem haldinn var í Finnlandi í júní. Á fundinum komu saman samstarfsaðilar frá Íslandi, Finnlandi, Svíþjóð og Írlandi til að fara yfir framvindu verkefnisins, ljúka fyrsta verkefnafasa og skipuleggja næstu skref í þróun nærandi ferðaþjónustu á Norðurslóðum.

REGENERATE er alþjóðlegt samstarfsverkefni sem styrkt er af Interreg Northern Periphery and Arctic (NPA) áætluninni og stendur yfir á árunum 2025–2028. Markaðsstofa Reykjaness er leiðandi samstarfsaðili verkefnisins og ber ábyrgð á samhæfingu þess í samstarfi við verkefnisaðila frá Íslandi, Finnlandi, Svíþjóð og Írlandi. Markmið verkefnisins er að styðja svæði við þróun nærandi (e. regenerative) ferðaþjónustu þar sem áhersla er lögð á að ferðaþjónusta hafi jákvæð áhrif á náttúru, samfélög og staðbundið atvinnulíf.

Farið yfir árangur og næstu skref

Megináhersla fundarins var að ljúka fyrsta verkefnafasa, þar sem farið var yfir niðurstöður vinnu sem meðal annars hefur falist í kortlagningu hagaðila, greiningu á stöðu ferðaþjónustu á þátttökusvæðunum, viðtölum við sérfræðinga og söfnun góðra fyrirmynda í nærandi ferðaþjónustu.

Jafnframt var lagður grunnur að næsta verkefnafasa, þar sem þróuð verða fræðsluefni og verkfæri fyrir ferðaþjónustuaðila, svæðisbundnir samstarfsvettvangar (Regenerative Travel Hubs), vinnustofur og kynningarefni sem styður við innleiðingu nærandi ferðaþjónustu. Einnig var farið yfir verkaskiptingu samstarfsaðila, næstu áfanga verkefnisins og sameiginlega aðgerðaáætlun.

Fundurinn fór fram í Hawkhill Cottage Resort í Finnlandi, sem er þekkt fyrir metnaðarfulla sjálfbærnistefnu og er gott dæmi um hvernig nærandi ferðaþjónusta getur verið innleidd í rekstri. Þar fengu þátttakendur innsýn í lausnir sem styðja við kolefnisminnkun, hringrásarhagkerfi og jákvæð áhrif á náttúru og nærsamfélag.

Samstarf sem skapar framtíðartækifæri

Með REGENERATE styrkir Markaðsstofa Reykjaness alþjóðlegt samstarf um þróun sjálfbærari og nærandi ferðaþjónustu. Verkefnið skapar vettvang fyrir miðlun þekkingar, þróun nýrra lausna og uppbyggingu samstarfs sem mun nýtast bæði Reykjanesi og öðrum svæðum á Norðurslóðum.

Þekkingin og reynslan sem skapast í verkefninu mun styðja við áframhaldandi þróun Reykjaness sem áfangastaðar þar sem náttúra, samfélög og atvinnulíf njóta góðs af ferðaþjónustu og þar sem gestir geta lagt sitt af mörkum til jákvæðrar þróunar svæðisins.

Meira um verkefnið má finna hér.