Stjörnu-Sævar heimsótti alla grunnskóla á Suðurnesjum í aðdraganda almyrkvans

Undirbúningur fyrir almyrkvann 12. ágúst 2026 hefur staðið yfir af fullum krafti á Suðurnesjum. Eitt af verkefnunum í aðdraganda hans var fræðsluverkefni fyrir grunnskóla á svæðinu þar sem vísindamiðlarinn Sævar Helgi Bragason, betur þekktur sem Stjörnu-Sævar, heimsótti alla grunnskóla á Suðurnesjum.
Fræðsla fyrir alla grunnskólanemendur
Heimsóknirnar voru hluti af fræðsluverkefni Reykjanes jarðvangs og GeoCamp Iceland sem hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Suðurnesja. Markmið verkefnisins var að auka þekkingu barna og ungmenna á almyrkva, fræða þau um örugga áhorfsupplifun og vekja áhuga á vísindum, náttúru og stjörnufræði.
Í heimsóknunum fræddi Stjörnu-Sævar nemendur um hvernig almyrkvi verður til, hvað gerist þegar tunglið hylur sólina og hvernig hægt er að fylgjast með myrkvanum á öruggan hátt. Fræðslan var sniðin að aldri nemenda og náði til allra skólastiga.
Almyrkvinn sem tækifæri til náms
Almyrkvi á sólu er einstakt náttúrufyrirbæri sem flestir fá aðeins tækifæri til að upplifa einu sinni á ævinni. Með verkefninu var þessi einstaka upplifun nýtt til að efla áhuga barna á STEM-greinum og hvetja þau til að kynna sér nánar heim vísinda, tækni og náttúru.
Hluti af undirbúningi fyrir almyrkvann
Fræðsluverkefnið er hluti af umfangsmiklum undirbúningi fyrir almyrkvann sem verður sýnilegur á Reykjanesi 12. ágúst 2026. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) hefur komið að undirbúningi ásamt sveitarfélögum, Reykjanes jarðvangi og fjölmörgum samstarfsaðilum með það að markmiði að tryggja örugga og vel skipulagða upplifun fyrir íbúa og gesti svæðisins.




