488. fundur SSS 17. maí 2001
Árið 2001, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum fimmtudaginn 17. maí kl. 17.00 á Fitjum.
Mætt eru: Skúli Þ. Skúlason, Sigurður Jónsson, Óskar Gunnarsson, Hallgrímur Bogason, Þóra Bragadóttir, Guðjón Guðmundsdóttir framkv.stj. og Jóhanna M. Einarsdóttir ritari.
Dagskrá:
1. Fundargerð Bláfjallanefndar frá 7/5 ´01 lögð fram og samþykkt.
2. Fundargerð Starfskjaranefndar STFS og SSS frá 25/4 ´01 lögð fram og samþykkt.
3. Fundargerð Þjónustuhóps aldraðra frá 3/5 ´01 lögð fram og samþykkt.
4. Bréf dags. 24/4 ´01 frá SSNV varðandi 9. ársþing SSNV sem haldið verður 31.ágúst og 1. sept. nk.
5. Bréf dags. 26/4 ´01 frá samgöngunefnd Alþingis ásamt frumvarpi til vegalaga, 462. mál, vegir að sumarbústaðahverfum. Stjórnin tekur ekki afstöðu til frumvarpsins.
6 Bréf dags. 30/4 ´01 frá landbúnaðarnefnd Alþingis ásamt frumvarpi til girðingalaga, 636. mál, heildarlög. Stjórnin gerir ekki athugasemd við frumvarpið.
7. Bréf dags. 26/4 ´01 frá menntamálanefnd Alþingis ásamt tillögu til þingsályktunar um ferðasjóð íþróttafélaga, 570. mál. Stjórnin tekur ekki afstöðu til þingsályktunarinnar.
8. Bréf dags. 26/4 ´01 frá menntamálanefnd Alþingis ásamt frumvarpi til laga um grunnskóla, 450. mál, útboð á skólastarfi. Stjórnin tekur ekki afstöðu til frumvarpsins.
9. Sameiginleg mál.
Engin bókuð mál undir þessum lið.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.40