562. fundur SSS 4. október 2006
Árið 2006, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum miðvikudaginn 4. október 2006, kl. 08.00 á Fitjum.
Mætt eru: Steinþór Jónsson, Birgir Örn Ólafsson, Oddný Harðardóttir, Óskar Gunnarsson, Guðjón Guðmundsson framkv.stj. og Jóhanna María Einarsdóttir ritari.
Fulltrúi Grindvíkinga boðaði forföll.
Dagskrá:
Í upphafi fundar minnntust fundarmenn Jóns K. Ólafssonar sem lést 4. september sl. Jón sat í stjórn SSS 1979 – 1985.
1. Bréf dags. 14/9 ´06 frá Sandgerðisbæ ásamt ályktun atvinnuráðs. Lagt fram
2. Bréf ódags. frá SSA ásamt dagskrá aðalfundar. Lagt fram.
3. Bréf dags. 31/8 ´06 frá SSNV ásamt ályktunum. Lagt fram.
4. Bréf dags. 11/9 ´06 frá Framkvæmdasýslu ríkisins, varðandi heilbrigðisstofnun Suðurnesja, D-álmu, nýbygging – Skilamat september 2005. Lagt fram.
5. Bréf dags. 18/9 ´06 frá Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, varðandi Sjálfseignarfélagið Dýraspítali Watsons. Framkvæmdastjóra falið að svara bréfinu.
6. Bréf dags. 26/9 ´06 frá Dýraverndarsambandi Íslands DSÍ. Lagt fram.
7. Bréf dags. 20/9 ´06 frá SASS ásamt ályktunum. Lagt fram.
8. Bréf dags. 26/9 ´06 frá Garðabæ varðandi Reykjanesfólkvang. Lagt fram.
9. Bréf dags. 20/9 ´06 frá FV ásamt ályktunum. Lagt fram.
10. Bréf dags. 6/4 ´06 frá SSH áður á dagskrá 28/4. (sjá ályktun aðalf. SSS frá 9/9 ´06). Varðandi skipun í nefnd sem fari yfir skipulag og stöðu Reykjanesfólkvangs. Málinu frestað til næsta fundar.
11. Ályktanir samþykktar á 29. aðalfundi S.S.S. þann 9. sept. ´06. Farið yfir dreifingu þeirra og þau efnisatriði sem snúa að stjórn SSS.
12. Kjör í nefndir á vegum samstarfsins – Kynntar nefndir sem skipa þarf í og ákveðið hvernig skuli staðið að kjöri og tilnefningum. Frestað til næsta fundar.
13. Lokun varnarstöðvarinnar – staða í atvinnumálum fyrrum starfsmanna. Berglind Kristinsdóttir atvinnuráðgjafi fór yfir stöðu mála.
14. Sameiginleg mál.
Engin bókuð mál undir þessum lið
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10.00