fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Griðarstaður fyrir börn sem hafa orðið fyrir áhrifum af heimilisofbeldi

Þóra Björk Ottesen hlaut viðurkenningu í Ræsingu Suðurnesja og verðlaunafé kr. 100.000 fyrir verkefni sitt Griðarstaður sem er  þjónustumiðstöð fyrir börn sem orðið hafa fyrir og/eða horft upp á heimilisofbeld.

Ræsing er samkeppni um góðar viðskiptahugmyndir, þar sem einstaklingum, hópum og fyrirtækjum er boðin þátttaka í stuttum hraðli. Þátttakendur fengu 8 vikur til þess að kortleggja viðskiptahugmynd sína með aðstoð og stuðningi frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Heklunni. Auk þess bauðst þátttakendum að sitja námskeið um stofnun og rekstur fyrirtækja, að þiggja einstaklingsráðgjöf og flytja fjárfestakynningu í lok verkefnisins.

Níu metnaðarfull verkefni tóku þátt í Ræsingu Suðurnesja, átaksverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heklunnar, atvinnu- og þróunarfélag Suðurnesja í atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni.