fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Ertu með hugmynd?

Hefur þú góða viðskiptahugmynd? Rekur þú fyrirtæki og vilt þróa nýja vöru eða þjónustu?Vinnumálastofnun/Velferðarráðuneyti auglýsir styrki til atvinnumála kvenna vegna ársins 2014 lausa til umsóknar.Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirtöldum skilyrðum:Verkefnið sé í eigu konu/kvenna og stjórnað að konuVerkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpunVerkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðarViðskiptahugmynd sé vel útfærðVeittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar, vegna markaðssetningar og gerðar markaðsáætlunar, þróunar vöru eða þjónustu, hönnunar og efniskostnaðar.Ennfremur geta konur sem hafa fullmótaða viðskiptaáætlun og hafa hug á því að stofna fyrirtæki á næstunni eða hafa stofnað fyrirtæki en ekki hafið rekstur, sótt um styrk til að koma henni í framkvæmd.Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni eru kr. 35.000.000 og er hámarksstyrkur kr. 3.000.000. Ekki eru veittir lægri styrkir en kr. 400.000.Umsóknarfrestur er til og með 24. febrúar 2014 og skal sækja um rafrænt á vefsíðu verkefnisins en þar má jafnframt finna frekari upplýsingar.Kynningarfundur verður haldinn í Reykjanesbæ á morgun, 12. febrúar kl 12 – 13:00. Skráning á netfangið oddny.kristjansdottir@vmst.is.atvinnumalkvenna.is Atvinnumál kvenna á Facebook.