Ráðgjöf
Heklan sinnir ráðgjöf á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar og menningarmála til einstaklinga, fyrirtækja og sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Atvinnuráðgjafar veita m.a.:
- ráðgjöf við rekstraráætlanagerð
- upplýsingar um mögulega styrki í boði
- leiðbeiningar við stofnun á fyrirtæki
- ráðgjöf við markaðssetningu
- leiðbeiningar við lánsumsóknir hjá Byggðastofnun
- ráðgjöf til Eignarhaldsfélags Suðurnesja
Hægt er að panta tíma í ráðgjöf á netfangið heklan@heklan.is
Gjaldtaka
Ráðgjöfin er gjaldfrjáls fyrstu 10 tímana en eftir það er tekið tímagjald. Regla þessi er byggð á samkeppnissjónarmiðum.
Trúnaður
Ráðgjafar eru bundnir trúnaði um þau verkefni sem veitt er ráðgjöf um.