Eldey frumkvöðlasetur
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum býður frumkvöðlum á Suðurnesjum vinnuaðstöðu í Eldey frumkvöðlasetri sem opnar á næstunni í Setrinu, nýju skrifstofuhóteli að Keilisbraut á Ásbrú.
Þeir sem vinna að nýsköpun geta sótt um aðstöðu og eru umsóknir metnar út frá nýsköpunargildi þeirra.
Boðið er upp á skrifborð með læstri geymslu fyrir 6 einstaklinga í opnu rými með aðgangi að kaffistofu, setustofu, fundarherbergjum og neti. Þá veita verkefnastjórar nýsköpunar og atvinnuþróunar frumkvöðlum ráðgjöf á völdum tímum auk þess sem boðið verður upp á frumkvöðlaspjall og viðburði.
Verð: kr. 25.000 á mánuði.








