fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Upplýsingafundur SA og Vinnumálastofnunar vegna fyrirtækja með rekstur í Grindavík

Samtök atvinnulífsins og Vinnumálastofnun bjóða atvinnurekendum með starfsemi í Grindavíkurbæ á upplýsingafund um stuðning til greiðslu launa vegna náttúruhamfaranna skv. lögum sem samþykkt voru 27. nóvember sl. Á fundinum mun starfsfólk Vinnumálastofnunar fara yfir form umsókna og hvaða gögn og aðrar upplýsingar þurfa að fylgja, ásamt því að svara fyrirspurnum um rétt til stuðnings.

Fundurinn er opinn öllum atvinnurekendum og sjálfstætt starfandi sem kunna að eiga rétt á stuðningi til greiðslu launa á grundvelli laganna.

Fundurinn fer fram á Teams fimmtudaginn 14. desember kl. 14:00 og þeir sem skrá sig fá hlekk á fundinn.