fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Opið fyrir umsóknir í Tækniþróunarsjóð

Tækniþróunarsjóður hefur opnað fyrir umsóknir í styrktarflokkunum  Sproti, Vöxtur  og  Markaður. Umsóknarfrestur rennur út þann 16. september 2024, kl. 15:00.

  • Sproti er fyrir ung nýsköpunarfyrirtæki og frumkvöðla og hefur það að markmiði að styðja við verkefni á byrjunarstigi. 
  • Vöxtur er fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og er ætlaður til að styrkja þróunarverkefni sem eru komin af frumstigi hugmyndar og er Sprettur öndvegisstyrkur innan Vaxtar.
  • Markaður er markaðsstyrkur til fyrirtækja sem skiptist í tvo ólíka flokka: Markaðsþróun og Markaðssókn. Þessum flokkum er ætlað að styðja við fyrirtæki á mismunandi stigum í undirbúningi afurðar á markað.

Fyrirhugað er að halda kynningarfundi seinna í ágúst og verða þeir auglýstir um leið og dagsetningar liggja fyrir.

Sótt er um rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís.

Nánari upplýsingar á síðu Tækniþróunarsjóðs.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel reglur sjóðsins:

Reglur Tækniþróunarsjóðs haustið 2024