fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Farsældarráð á Suðurnesjum

Sveitarfélögin á Suðurnesjum hafa samþykkt að innleiða svæðisbundin farsældarráð sem unnið verður í gegnum Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum. Börn og foreldrar sem á þurfa að halda eiga þannig að hafa aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana samkvæmt farsældarlögum.

Ráðin gegna lykilhlutverki í farsældarlögum við samþættingu þjónustu með því að fá hina mismunandi þjónustuaðila að borðinu í samtal,“ segir Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra. „Við viljum brjóta niður múra milli þjónustuaðila, stofnana og sveitarfélaga til að veita bestu þjónustu á hverjum tíma og við hverjar aðstæður í þágu farsældar barna. Þau eru hjartað í kerfinu.“

Færsældarráð eru byggð á niðurstöðum starfshóps mennta- og barnamálaráðuneytisins um samhæfða svæðaskipan í málefnum barna. Að mati starfshópsins voru mikil tækifæri við það að starfrækja svæðisbundin farsældarráð eftir svæðaskiptingu landshlutasamtaka sveitarfélaga en sveitarfélögin eru vön að vinna saman eftir landshlutum t.a.m. þegar kemur að sóknaráætlunum en gert er ráð fyrir að þær fjármagni kostnað vegna verkefnastjóra.