fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Stafræn umbreyting á Norðurlöndunum

Nú gefst einstakt tækifæri til að hlýða á og ræða við sérfræðinga Nordic Smart Government & Business í stafrænni umbreytingu fyrirtækja  og stofnana.  

Fjarfundir verða haldnir í  október 2024.  Á fundunum, alls fimm talsins, verður m.a. fjallað um megin afurðir verkefnavinnu Nordic Smart Government & Business.  

Dagskráin er sem hér segir: 

  • 8. október kl. 11:00-12:00 
    Að auðvelda líf norrænna fyrirtækja  – Noregur sem prófunarvettvangur 
  • 9. október kl. 11:00-12:30 
    Í þágu viðskiptatrausts  – Bætt aðgengi að upplýsingum úr skrám hins opinbera  
  • 10. október kl. 9:30-10:15 
    Rafræn viðskiptaskjöl – Auðveldari, öruggari og skilvirkari viðskipti yfir landamæri 
  • 11. október kl. 8:00-8:45 
    Niðurstöður tilraunaverkefna um stafræn skil á upplýsingum um virðisaukaskattsskyld viðskipti til skattyfirvalda 
  • 22. október kl. 8:00-8:45 
    Leiðbeiningar um virðisaukaskatt og endurgreiðslur – Undirbúningur fyrir framtíðina 

Fundirnir fara fram á ensku. Þátttaka er öllum að kostnaðarlausu en nauðsynlegt er að skrá sig. Nánari upplýsingar og skráning á vef fyrirtækjaskrár í Svíþjóð.  

Við hvetjum þig til að taka þátt í mikilvægu samtali opinberra aðila og einkaaðila um stafvæðingu í þágu atvinnulífs og samfélags.