Sóknaráætlun 2025-2029
Sóknaráætlanasamningar við átta landshlutasamtök sveitarfélaga voru undirritaðir þann 28. janúar 2025 en þeir gilda til fimm ára (2025-2029).
Framlög til Sóknaráætlunar Suðurnesja voru 103.259.936 kr. á árinu 2025.

Áhersluverkefni Sóknaráætlunar 2025:
Áhersluverkefni eru samningsbundin verkefni sem hafa beina skírskotun til sóknaráætlunar landshlutans. Þau eru samþykkt af stjórn SSS og þurfa að hljóta staðfestingu stýrihóps Stjórnarráðsins um byggðamál. Yfirlit yfir áhersluverkefni má sjá hér að neðan.
Verkefnið miðar að því að tryggja örugga og sjálfbæra ferðaþjónustu á Reykjanesi þrátt fyrir náttúruvá. Lögð er áhersla á skýra upplýsingamiðlun bæði þegar eldgos eru virk og á milli þeirra, uppbyggingu áfangastaðarins og samvinnu hagsmunaaðila. Framkvæmdaraðili er Markaðsstofa Reykjaness og verkefnið stendur 2025–2027. Heildarkostnaður er 10,5 m.kr.,þar af 3,5 m.kr. á ári úr sóknaráætlun.content.
Verkefnið styrkir fræðslustarf Reykjanes Geopark með vettvangsferðum fyrir kennara, fyrirlestrum og ráðstefnum um jarðfræði, sjálfbærni og náttúru. Markmiðið er að auka þekkingu kennara og skólafólks og efla samstarf skóla við Geopark og UNESCO. Framkvæmdaraðili er Reykjanes Geopark og verkefnið stendur 2025–2027. Heildarkostnaður er 18 m.kr., þar af 4 m.kr. á ári úr sóknaráætlun og 2 m.kr. mótframlag.
Verkefnið styrkir ímynd Reykjaness í kjölfar eldgosa í Grindavík með markaðsrannsóknum, góðum sögum af svæðinu, stafrænum miðlum og fræðsluefni fyrir íbúa, fjárfesta og ferða-menn. Markmiðið er að byggja upp traust og laða að fjárfestingar. Framkvæmdaraðili er Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum og verkefnið stendur 2025–2027. Heildarkostnaður er 30 m.kr., þar af 10 m.kr. á ári úr sóknaráætlun.
Verkefnið þróar Reykjanes sem áfangastað fyrir myrkurferðaþjónustu með stjörnuskoðun og norðurljósaferðum, með sérstakri áherslu á Almyrkvann 2026. Felur í sér þróun ferðaleiða, áningastaða og markaðsefnis. Framkvæmdaraðili er Markaðsstofa Reykjaness og verkefnið stendur 2025–2026. Heildarkostnaður er 10 m.kr., þar af 3 m.kr. á ári úr sóknaráætlun og 2 m.kr. mótframlag frá Ferðamálastofu.