fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

SAMBAND SVEITARFÉLAGA Á SUÐURNESJUM

Ársrit 2025

Starfsemi 2025

Starfsemi 2025

Vorfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum var haldinn þann 12. apríl 2025 í Reykjanesbæ. Aðalfundur SSS var haldinn 4. október þar sem m.a. var ályktað um fjárframlag ríkisins til Suðurnesja.


Misræmi í stuðningi til landshluta

Aðalfundur skoraði á ríkisvaldið að tryggja Suðurnesjum sambærilegt fjárframlag og öðrum landshlutum til að mæta hraðri fólksfjölgun og sértækum áskorunum svæðisins. Framlag til atvinnu- og byggðaþróunar er lægst á landinu miðað við höfðatölu. Sama misræmi sést í framlagi til Sóknaráætlunar.

Fjöldi stöðugilda ríkisins er lægstur á Suðurnesjum þrátt fyrir stöðuhlutföll hjá Isavia sem teljast opinber störf.

Íbúar á Suðurnesjum eiga rétt á sambærilegri þjónustu og stuðningi og aðrir landsmenn. Lítil áhersla hefur verið lögð á að aðstoða vaxtarsvæði sem standa frammi fyrir einhæfu og sveiflukenndu atvinnulífi, miklum fjölda innflytjenda og lágum tekjum. Þá hefur svæðið staðið frammi fyrir náttúruhamförum sem eiga sér engan líka.



Framlag til atvinnu- og byggðaþróunar

Framlög Suðurnesja úr opinberum sjóðum, t.d. vegna byggðaþróunar ,er 821 krónur á íbúa á Suðurnesjum en 1.880 kr. á Vesturlandi, framlag til sama málaflokks á Vestfjörðum er hins vegar 5,777 kr. 

Í Sóknaráætlun er framlag á hvern íbúa á Suðurnesjum 3.017 kr., Vesturland 5.347 kr. og Vestfirðir fá 14.231 kr. í framlag fyrir hvern íbúa.

Það er rétt að benda á að langfæst stöðugildi hins opinbera eru á Suðurnesjum, þrátt fyrir að stöðugildi Isavia á Keflavíkurflugvelli sem OHF séu flokkuð sem opinber störf.




Framkvæmdasjóður ferðamála

Heildarúthlutun 2020-2025 er 3.873 mkr og þar af fóru 151 til Suðurnesja eða 3,5 %. Úthlutun vegna náttúruverndar og öryggis var 979 mkr þar af fóru 18 mkr til Suðurnesja eða 2%.




Lóan, nýsköpunarsjóður Landsbyggðarinnar

Árið 2025 bárust 97 umsóknir í Lóuna, þar af 21 af Suðurnesjum en árangurshlutfall var 0%.