fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

SAMBAND SVEITARFÉLAGA Á SUÐURNESJUM

Ársrit 2025

Samstarfsvettvangur

Samstarfsvettvangur sveitarfélaga og hagsmunaaðila

Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum er vettvangur samstarfs í landshlutanum og leiðir þar fyrir hönd samstarfs- og hagsmunaaðila á svæðinu m.a. Reykjanes Geopark, Áfangastaðastofu/Markaðsstofu Reykjaness, Farsældarráð Suðurnesja og Hekluna atvinnuþróunarfélag Suðurnesja. Markmið með þessu samstarfi er meðal annars að þróa og útbúa verkfæri til að styðja við og byggja undir frekari þróun á svæðinu, verndun og uppbyggingu áningarstaða, skapa tækifæri til nýsköpunar og vöruþróunar og fræðslu, eflingu samfélags og styrkingu staðarímyndar. Starfsmenn áfangastofunnar og jarðvangsins eru einnig atvinnuráðgjafar.



Markaðsstofa Reykjaness – áfangastaðastofa

Markaðsstofa Reykjaness er áfangastaðastofa landshlutans og samstarfsvettvangur ríkis, sveitarfélaga, stofnana og fyrirtækja um þróun og markaðssetningu ferðaþjónustu á Reykjanesi.

Hlutverk stofunnar er að efla samstarf, samhæfingu og þróun sjálfbærrar ferðaþjónustu, styrkja markaðssetningu svæðisins og skapa aukin tækifæri fyrir atvinnulíf og samfélag.

Árið 2025 einkenndist af aukinni áherslu á stefnumótun, samhæfingu og uppbyggingu sjálfbærrar ferðaþjónustu, samhliða því að takast á við áhrif náttúruvár og nýta þau tækifæri sem felast í þróun svæðisins.

Á árinu voru samþykkt nokkur ný verkefni innan Sóknaráætlunar Suðurnesja, meðal annars á sviði nærandi ferðaþjónustu, myrkurferðaþjónustu, skemmtiferðaskipa, náttúruvár og aukins samstarfs fyrirtækja og samfélags. Verkefnin styðja við framtíðarsýn um Reykjanes sem sjálfbæran, öruggan og samkeppnishæfan áfangastað.




Reykjanes jarðvangur – Reykjanes UNESCO Global Geopark

Jarðvangurinn er samfélagssáttmáli um verndun jarðminja og sjálfbæra nýtingu auðlinda svæðisins.

Hlutverk Reykjanes Geopark er að vera samstarfsvettvangur sveitarfélaga, stofnana og fyrirtækja á Reykjanesi sem vinna sameiginlega að uppbyggingu UNESCO hnattræns jarðvangs á Reykjanesi.

Jarðvangur þarf að sýna og kynna einstaka jarðfræðiarfleifð með alþjóðlegt mikilvægi. Tilgangur jarðvangs er sömuleiðis að kanna, þróa og hampa þeim tengslum sem eru á milli jarðfræðilegrar arfleifðar og annarra þátta í náttúru, menningu og óáþreifanlegum minjum á svæðinu. Þannig er unnið að tengslum mannlegs samfélags á jörðinni við 4.6 milljarða ára sögu jarðarinnar sem hefur mótað alla þætti í lífi okkar og samfélagi.

Verkefni Reykjanes jarðvangs miða að fræðslu innan jarðvangsins, vöruþróun og uppbyggingu áningarstaða. Reykjanes jarðvangur hefur sína eigin stjórn en vinnur í nánu samstarfi við landshlutasamtökin og tengdar stofnanir.



Heklan – atvinnuþróun

Heklan er leiðandi afl í uppbyggingu atvinnu og þróunar á Suðurnesjum með það að markmiði að fjölga atvinnutækifærum, efla hagvöxt, auka fjölbreytileika þeirra starfa sem í boði eru, skapa hagstæð skilyrði fyrir ný verkefni og tækifæri, kynna fjárfestingarkosti og efla Suðurnes sem eftirsóttan valkost til búsetu.

Markmið Heklunnar eru:

  • Að byggja upp og efla gagnkvæma miðlun þekkingar, reynslu og hæfni
  • Að skapa grundvöll fyrir samstarf í eflingu búsetuskilyrða, samkeppnishæfni svæðisins og nýsköpun og atvinnuþróun
  • Að samþætta áherslur svæðisins í samræmi við Sóknaráætlun Suðurnejsa
  • Að efla og styðja við atvinnulíf og nýsköpun með atvinnuráðgjöf og stuðningi




Farsældarráð Suðurnesja

Farsældarráð Suðurnesja var formlega stofnað 23. júní 2025 og er hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Ráðið starfar samkvæmt lögum nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og byggir á samstarfi SSS, mennta- og barnamálaráðuneytisins, sveitarfélaga og fjölda þjónustuaðila á Suðurnesjum.

Hlutverk ráðsins er að efla og samræma þjónustu við börn og fjölskyldur með samþættri, snemmtækri og heildstæðri nálgun. Áhersla er lögð á þverfaglegt samstarf, forvarnir og virkt samráð við börn og foreldra, auk þess að móta fjögurra ára aðgerðaáætlun sem tekur mið af þörfum svæðisins.

Starfsemi ráðsins byggir á farsældarráði og framkvæmdahópi, en verkefnastjóri farsældar hjá SSS annast daglega umsýslu og framkvæmd verkefna.

Helstu áfangar ársins 2025

  • Verkefnastjóri farsældar á Suðurnesjum var ráðinn til starfa í mars 2025.
  •  Farsældarráð Suðurnesja formlega stofnað 23. júní 2025
  • Umfangsmikil kortlagning unnin á stöðu farsældar barna á Suðurnesjum, aðgengi að þjónustu og samstarfi þjónustuveitenda.
  • Vinna hófst við greiningu á fjárframlögum til barnaþjónustu á Suðurnesjum.
  • Í maí 2025 fékk Farsældarráð Suðurnesja 43 milljón króna styrk til þess að þróa og innleiða tilraunaverkefnið Ávísun á farsæld í grunnskólum á Suðurnesjum og Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
  • Farsældarráð Suðurnesja fundaði í fyrsta sinn 20. nóvember 2025
  • Málþingið Staða barna á Suðurnesjum haldið í Hljómahöll 20. nóvember 2025
  • Framkvæmdahópur farsældar fundaði mánaðarlega frá stofnun ráðsins.