Markaðssetning og staðfærsla Reykjaness

Árið 2025 var unnið markvisst að því að styrkja stöðu Reykjaness sem heilsársáfangastaðar á innlendum og erlendum mörkuðum. Sérstök áhersla var lögð á náttúrutengda upplifun, nálægð við Keflavíkurflugvöll, eldfjallatengda upplifun, sjálfbærni og undirbúning fyrir almyrkvann 2026.
Markaðsstofan tók þátt í alþjóðlegum ferðakaupstefnum og vinnustofum, þar á meðal Vestnorden og World Travel Market í London. Þar var Reykjanes kynnt sem spennandi áfangastaður með aukna möguleika fyrir heilsársferðamennsku og sérhæfða upplifun. Mikill áhugi kom fram á eldfjallatengdri ferðaþjónustu og upplifunum tengdum náttúru svæðisins.
Jafnframt var unnið að uppfærðri markaðsgreiningu fyrir Reykjanes í samstarfi við fyrirtæki og hagaðila á svæðinu. Greiningin verður grunnur að áframhaldandi þróun markaðsstarfs og stefnumótunar fyrir áfangastaðinn.
Ráðstefnur, sýningar og vinnustofur
Námskeið starfsmanna markaðs- og áfangastaðastofa landshlutanna
Starfsmenn markaðs- og áfangastaðastofa hittast á 2ja daga námskeiði árlega, þar sem farið er yfir sameiginleg verkefni og fræðst um verkfæri og ferla nýrra verkefna til að byggja upp þekkingu innan svæðanna. Á námskeiðinu gafst starfsmönnum einnig færi á að ná fundum með starfsmönnum annarra stofnana sem vinna að ferðamálum á landsvísu, þar á meðal Íslandsstofu og Ferðamálastofu. Sérstaklega var sjónum beint að gervigreind og verkefnastjórnun. Námskeiðin fóru fram á Vestfjörðum og í Reykjavík.
Starfsmenn markaðsstofunnar sóttu nokkrar sýningar og vinnustofur erlendis á helstu mörkuðum Reykjaness, sem hluta af erlendri markaðssetningu á svæðinu. Meðal þess sem var sótt voru:
- Mannamót Markaðsstofa landshlutanna
- Vinnustofa fimm landa í London
- Vinnustofur í USA með Íslandsstofu
- Ferðakaupstefnan Vestnorden (haldin á Akureyri)
- AECO – ráðstefna og stefnumót við ferðaskrifstofur og skipafélög

Samstarfsverkefni
Samstarf við tengdar stofnanir er mikilvægur þáttur í starfseminni og eru verkefnin fjölbreytt. Öll miða þau að því að efla byggðaþróun innan landshlutanna og styðja við, efla og stuðla að tækifærum til virðisauka og vöruþróunar.

Árið 2025 hófst markviss vinna við undirbúning Reykjaness fyrir almyrkvann sem verður sýnilegur á Íslandi þann 12. ágúst 2026. Fljótlega varð ljóst að verkefnið kallaði á mun víðtækari samhæfingu en hefðbundna kynningarvinnu, enda talið að Reykjanes verði eitt besta svæði landsins til að upplifa myrkvann.
Í framhaldi af fyrstu samtölum við sveitarfélög, viðbragðsaðila, ferðaþjónustu og sérfræðinga var ákveðið að verkefnið yrði eitt af áhersluverkefnum Sóknaráætlunar Suðurnesja undir heitinu Myrkurferðaþjónusta á Reykjanesi. Markaðsstofa Reykjaness leiddi verkefnið í samstarfi við Reykjanes jarðvang, sveitarfélög og fjölmarga hagaðila.
Settur var á laggirnar svæðisbundinn stýrihópur um undirbúning fyrir almyrkvann með þátttöku sveitarfélaga, viðbragðsaðila, ferðaþjónustu og annarra lykilaðila. Hlutverk hópsins er að samræma undirbúning vegna umferðar, öryggis, upplýsingamiðlunar, uppbyggingar áningarstaða og upplifunar gesta á Reykjanesi. Áhersla verkefnisins snýr ekki eingöngu að sjálfum atburðinum heldur einnig að langtímauppbyggingu myrkurferðaþjónustu á Reykjanesi, þar sem stjörnuskoðun, norðurljós og náttúruupplifun utan háannatíma skapa ný tækifæri fyrir svæðið. Verkefnið tengist þannig bæði sjálfbærri ferðaþjónustu og fjölgun heilsársverkefna innan svæðisins.
Árið 2025 hófst umfangsmikil vinna við að innleiða hugmyndafræði nærandi ferðaþjónustu (regenerative tourism) inn í stefnumótun og þróun áfangastaðarins Reykjaness. Verkefnið byggir á þeirri sýn að ferðaþjónusta stuðli ekki eingöngu að hagvexti heldur einnig að jákvæðum áhrifum fyrir samfélag, náttúru og menningu svæðisins.
Í verkefninu var meðal annars unnið að:
- uppfærslu áfangastaðaáætlunar Reykjaness,
- nýrri markaðs- og markhópagreiningu,
- þróun sjálfbærniviðmiða fyrir verkefni og áningarstaði,
- undirbúningi að stofnun markaðsráðs og sjálfbærniráðs Reykjaness,
- og samþættingu sjálfbærni inn í markaðssetningu og upplýsingamiðlun svæðisins.
Verkefnið tengdist jafnframt alþjóðlega samstarfsverkefninu REGENERATE sem Markaðsstofa Reykjaness leiðir innan Interreg NPA – áætlunarinnar. Með verkefninu styrktist staða Reykjaness sem leiðandi svæðis í þróun nærandi ferðaþjónustu á norðurslóðum.
Árið Á árinu hófst vinna við að formgera aukið samstarf fyrirtækja, sveitarfélaga og stofnana á Reykjanesi undir verkefninu Nærandi samstarf – Samvinna fyrir sjálfbæra framtíð. Markmið verkefnisins er að styrkja samstarf innan ferðaþjónustu og tengdra greina með sameiginlegri sýn um sjálfbærni, samfélagsábyrgð og þróun áfangastaðarins.
Í verkefninu var unnið að:
- mótun samstarfssamninga og sameiginlegra siðareglna,
- undirbúningi samfélagssáttmála fyrir samstarfsaðila,
- þróun sjálfbærnistefnu fyrir samstarfsvettvanginn,
- og auknu samtali milli atvinnulífs, sveitarfélaga og verkefna á vegum SSS, Markaðsstofu Reykjaness og Reykjanes jarðvangs.
Verkefnið er hluti af stærri vegferð í átt að samhæfðari og sjálfbærari uppbyggingu svæðisins þar sem fyrirtæki og samfélag vinna saman að langtímaþróun Reykjaness.
Markaðsstofa Reykjaness hefur leitt samstarf um þróun og markaðssetningu á móttöku skemmtiferðaskipa á Suðurnesjum undanfarin ár. Verkefnið er unnið í samstarfi við Reykjaneshafnir og Grindavíkurhöfn. Þrjú skip komu til hafnar á svæðinu sem er 200% aukning frá árinu áður. Unnið var með Reykjaneshöfnum að undirbúningi og kynningu innan svæðisins, auk frekari vinnu í markaðssetningu og þróun á móttöku skemmtiferðaskipa.
Gott samstarf hefur verið á árinu milli landshluta, markaðsstofa og Cruise Iceland og unnið er að enn frekara samstarfi á næsta ári.
Mikið og gott samstarf er við Íslandsstofu á þeim sviðum sem stofnunin sinnir og þeirri þjónustu sem hún veitir í nýsköpun, þróun og markaðssetningu erlendis. Meðal þeirra verkefna sem hafa verið fyrirferðamest eru undirbúningur og móttaka blaðamanna, fjárfestingar og markaðssetning erlendis í formi vinnustofa og sýninga sem áfangastaðurinn tekur þátt í. Þá hefur samstarf verið að þróast við fleiri svið innan Íslandsstofu tengt þeim verkefnum sem unnin hafa verið t.d. tengt ráðstefnu- og fundaverkefninu í samstarfi við Meet in Reykjavík, skemmtiferðaskipaverkefninu í samstarfi við Cruise Iceland og markaðssetningu í tengslum við sjávarútveginn og orkumál.
Þá fór stjórn Íslandsstofu í ferð um Reykjanesið á árinu til að kynnast atvinnulífi á svæðinu betur í samræmi við það samstarf sem hefur átt sér stað.
Markaðsstofa Reykjaness hefur verið í nánu samstarfi við Íslenska ferðaklasann í gegnum árin með það að markmiði að auka tækifæri í ferðaþjónustu á svæðinu og efla samkeppnishæfni greinarinnar. Meðal þeirra verkefna sem komið hefur verið að eru tækifæri fyrirtækja á svæðinu til þátttöku í erlendum verkefnum (og fjármagnsstuðningur) eins og í verkefnunum Tourbit og Phenix 4.0. Ratsjáin fram á árinu, þar sem SSS og Markaðsstofan voru samstarfsaðilar og fulltrúi þeirra kom að undirbúningi og markaðssetningu á verkefninu.
Samráð Kötlu Geopark og Reykjanes Geopark um sameiginleg málefni hefur aukist til muna undanfarin ár. Reglulegir fundir starfsfólks jarðvanganna hafa skilað skýrari mynd af sameiginlegum hagsmunamálum og styrkt okkar samband. Samkvæmt nýlegri skipun GGN er unnið að því að formgera þennan vettvang jarðvanga á Íslandi sem netverk íslenskra jarðvanga eða Íslandsdeild GGN þar sem verkefnastjóri jarðvangsins fer með formennsku. Fundir eru haldnir einu sinni í hverjum mánuði má vænta að helsta verkefni deildarinnar á nýju ári verður að innleiða langtímastefnumótun GGN og áhersluatriði GGN fyrir 2025-2027.
Íslandsnefnd jarðvanga fundar tvisvar á ári um málefni jarðvanga á Íslandi og frekari þróun þeirra. Upplýsingar um nefndina og fundargerðir er að vinna á vefnum www.geopark.is. Á þeim vettvangi hafa verið ræddir möguleikar á sameiginlegri markaðssetningu UNESCO svæða á Íslandi og hafa fulltrúar jarðvanganna fylgt því – eftir til UNESCO nefndarinnar, Íslandsstofu og Menningar- og viðskiptaráðuneytisins.







Mannamót Markaðsstofa landshlutanna og ferðaþjónustuvikan
Mannamót Markaðsstofa landshlutanna er árleg ferðakaupstefna sem haldin er af Markaðsstofum landshlutanna. Markmið og tilgangur viðburðarins er að skapa vettvang þar sem ferðaþjónustufyrirtæki af landsbyggðinni fá tækifæri til að kynna sína þjónustu og vöruframboð fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu.
Viðburðurinn er í dag einn stærsti viðburður ferðaþjónustunnar á Íslandi og mikilvægur þáttur í kynningarstarfi ferðaþjónustunnar.
Mjög góð þátttaka var á viðburðinum eins og svo oft áður, en hátt í 1.500 manns sóttu sýninguna, bæði sýnendur og gestir. Góð þátttaka var af Reykjanesi, þar sem 14 fyrirtæki tóku þátt.
Markaðsstofa Reykjaness vinnur að verkefninu ásamt öðrum markaðs- og áfangastaðastofum á landsbyggðinni.
Ferðaþjónustuvikan
Ferðaþjónustuvikan var haldin í fyrsta sinn í janúar samhliða Mannamóti Markaðsstofa landshlutanna. Markmið vikunnar er að auka vitund um mikilvægi ferðaþjónustu og efla samstarf og fagmennsku í greininni með fróðlegri og skemmtilegri dagskrá undir merkjum Ferðaþjónustuvikunnar.
Viðburðirnir voru allir haldnir á höfuðborgarsvæðinu en meðal þess sem var boðið upp á í ár auk Mannamóta, var Nýársmálstofa SAF, Ferðaklasans og KPMG, viðburður um hvataferðamarkaðinn með Íslandsstofu, hraðstefnumót tæknifyrirtækja og ferðaþjónustu sem Ferðamálastofa og Ferðaklasinn sáu um, Dagur ábyrgrar ferðaþjónustu á vegum Íslandsstofu og Ferðaklasans og Straumhvörf, vöruþróunarverkefni Áfangastaðastofu Norðurlands og Austurbrúar.
Ferðaþjónustuvikan er samstarf allra markaðsstofa landshlutanna, Íslenska ferðaklasans, Samtaka ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofu og Íslandsstofu.