fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Öflug fræðsla í tengslum við almyrkvann á Reykjanesi

Almyrkvinn 12. ágúst 2026 skapaði einstakt tækifæri til fræðslu um vísindi, náttúru og tækni. Reykjanes jarðvangur hafði frumkvæði að umfangsmikilli fræðsluáætlun sem unnin var í góðu samstarfi við sveitarfélögin, skóla, fyrirtæki og samstarfsaðila á Suðurnesjum.

Markmið verkefnisins var að fræða börn, ungmenni, kennara og íbúa um almyrkva, stuðla að öruggri upplifun og nýta þennan einstaka náttúruviðburð til að efla vísindalæsi og áhuga á náttúruvísindum.

Sólmyrkvagleraugu fyrir um 4.000 nemendur

Allir grunnskólanemendur innan Reykjanes jarðvangs, um 4.000 börn, fengu viðurkennd sólmyrkvagleraugu. Þannig var tryggt að nemendur gætu fylgst með deildarmyrkvanum á öruggan hátt og tekið virkan þátt í fræðslunni.

Sveitarfélögin fjögur, Reykjanesbær, Suðurnesjabær, Grindavíkurbær og Sveitarfélagið Vogar, styrktu verkefnið.

Fræðslubók fyrir leikskólana

Leikskólar innan Reykjanes jarðvangs fengu bókina Sólmyrkvar eftir Sævar Helga Bragason. Með bókunum gafst yngstu íbúum svæðisins tækifæri til að kynnast fyrirbærinu á aðgengilegan og skemmtilegan hátt.

Sveitarfélögin fjögur styrktu einnig þann hluta fræðsluáætlunarinnar.

Stjörnusjónaukar til áframhaldandi fræðslu

Grunnskólar á svæðinu fengu stjörnusjónauka með sólarsíu til afnota við kennslu. Sjónaukarnir nýtast ekki aðeins til fræðslu um sólina og sólmyrkva heldur skapa einnig fjölbreytt tækifæri til áframhaldandi kennslu í stjörnufræði og náttúruvísindum.

Kadeco þróunarfélag Keflavíkurflugvallar og atNorth gagnaverið lögðu verkefninu lið með fjórum sjónaukum hvort, auk þess sem Reykjanes jarðvangur lagði til tvo sjónauka.

Stjörnu-Sævar heimsótti grunnskólana

Í aðdraganda almyrkvans heimsótti Sævar Helgi Bragason, betur þekktur sem Stjörnu-Sævar, alla grunnskóla á Suðurnesjum. Þar fræddi hann nemendur um almyrkva, útskýrði hvað ætti sér stað þegar tunglið gengi fyrir sólina og fór yfir hvernig fylgjast mætti með fyrirbærinu á öruggan hátt.

Heimsóknirnar voru samstarfsverkefni Reykjanes jarðvangs og GeoCamp Iceland og hlutu styrk frá Uppbyggingarsjóði Suðurnesja.

Kennarar undirbúnir fyrir almyrkvann

Sævar Helgi hélt einnig sérstakan fyrirlestur fyrir kennara þar sem fjallað var um vísindin á bak við almyrkvann og hvernig hægt væri að miðla þeim áfram til nemenda. Reykjanes jarðvangur stóð að fyrirlestrinum.

Stóru sólmyrkvagleraugun vöktu athygli

Stóru sólmyrkvagleraugunum var komið fyrir á völdum stöðum í sveitarfélögunum og gegndu þau bæði hlutverki listaverka og samkomutákna í tengslum við almyrkvann. Þau vöktu athygli á viðburðinum og sköpuðu skemmtilega umgjörð fyrir íbúa og gesti.

Verkefnið var styrkt af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja og unnið í samstarfi Reykjanes jarðvangs og sveitarfélaganna fjögurra.

Samstarf sem skilur eftir sig varanleg verðmæti

Fræðsluáætlunin náði til barna á öllum skólastigum, kennara og almennings. Verkefnið stuðlaði ekki aðeins að öruggri og fræðandi upplifun af almyrkvanum heldur skilur það eftir sig bækur, sjónauka, þekkingu og kennslutækifæri sem nýtast skólum á Suðurnesjum áfram.

Árangurinn sýnir jafnframt hvað hægt er að skapa með öflugu samstarfi sveitarfélaga, skólasamfélagsins, fyrirtækja og annarra samstarfsaðila á svæðinu.