Yfir 20 Grindvísk fyrirtæki saman á IceFish 2026
Yfir tuttugu fyrirtæki úr atvinnulífi Grindavíkur taka þessa dagana þátt í sjávarútvegssýningunni IceFish 2026 í Fífunni í Kópavogi. Sýningin hófst í gær, þriðjudaginn 22. september, og stendur til fimmtudagsins 24. september.
Fyrirtækin koma fram á sameiginlegum bás undir merkjum Grindavík – Saman í sókn, þar sem kraftur og fjölbreytni atvinnulífs Grindavíkur er í forgrunni.
Á básnum koma saman fyrirtæki úr ólíkum greinum, meðal annars sjávarútvegi, fiskeldi, tækni, hafnarþjónustu, flutningum, matvælum, ferðaþjónustu og veitingarekstri. Saman gefa þau góða mynd af þeirri breidd, þekkingu og reynslu sem býr í atvinnulífi Grindavíkur.
Markmiðið með sameiginlegri þátttöku er að skapa öflugan vettvang fyrir fyrirtækin til að kynna starfsemi sína, efla tengsl og sækja ný viðskiptatækifæri.
Umgjörð sem segir sögu Grindavíkur
Umgjörð bássins segir jafnframt sögu Grindavíkur. Hluti hans er byggður úr öryggisgirðingum sem áður voru notaðar við lokanir og afmörkun svæða í bænum. Á IceFish hafa þær fengið nýtt hlutverk sem hluti af sameiginlegri framsetningu fyrirtækjanna.
Gamlar veiðarfæraleifar, korkflotlínur og glerkúlur úr búnaði grindvískra báta eru einnig hluti af hönnuninni og tengja þannig saman sögu sjávarútvegsbæjarins og framtíð hans.
Grindavík saman á bás D30
Sameiginlegi básinn er D30 og verður þar líf og fjör út sýninguna. Gestir geta kynnt sér starfsemi fyrirtækjanna, hitt fulltrúa þeirra og rætt möguleika til samstarfs.
IceFish er opin í dag, miðvikudaginn 23. september, kl. 10:00–18:00 og á morgun, fimmtudaginn 24. september, kl. 10:00–17:00.
Gestir sýningarinnar eru hvattir til að líta við á bás D30 og kynnast fjölbreytta atvinnulífinu sem Grindavík hefur upp á að bjóða.
Þátttakan á IceFish er liður í Grindavík – Saman í sókn, þar sem unnið er að því að efla atvinnulíf, samstarf og tækifæri í Grindavík til framtíðar.















Ljósmyndari á vegum Grindavíkurbæjar leit við á IceFish í gær og fangaði stemninguna á sameiginlegum bás Grindavíkur. Hér má sjá brot af því sem fyrir augu bar á sýningunni.
Myndir: Grindavíkurbær