Ráðstefna í Hljómahöll 14. október: Suðurnesin sem drifkraftur vaxtar
Kadeco efnir til ráðstefnu miðvikudaginn 14. október í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ kl. 14:00 í samstarfi við Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Þar verður fjallað um þau tækifæri sem liggja í markvissri uppbyggingu á Suðurnesjum, áhrif aukinna erlendra fjárfestinga á vermætasköpun og samkeppnishæfni Íslands í alþjóðlegu samhengi.
Að fundinum loknum verður boðið upp á léttar veitingar í tilefni af 20 ára afmælis Kadeco.
Dagskrá:
14:00: Opnun ráðstefnu
Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum opnar ráðstefnuna.
14:10: Af hverju Suðurnesin – af hverju núna?
Bergur Ebbi fundarstjóri leggur línurnar fyrir daginn og fer yfir dagskrá ráðstefnunnar.
14:20: Saga, seigla og alþjóðleg framtíð Suðurnesja
Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco.
Suðurnesin eru einstakt svæði á landsvísu sem býr yfir innviðum og tækifærum fyrir fjölbreyttan iðnað af öllum stærðum og gerðum.
14:40: KEF – Keflavíkurflugvöllur – verðmæti fyrir samfélagið
Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia.
Keflavíkurflugvöllur (KEF) skapar langtíma virði fyrir samfélagið í heild sinni. Sveinbjörn fer yfir hlutverk flugvallarins fyrir samfélagið og efnahagslífið og mikilvægi hans sem grunninnvið og stærstu gáttina til Íslands.
Hlé – boðið uppá kaffi og veitingar
15:30: Unlocking Iceland and Keflavik Airport Region’s potential for Foreign Direct Investment in a changing world.
Marc O’Connell stjórnarformaður OCO Global
Mark er stjórnarformaður og stofnandi OCO Global, alþjóðlegs ráðgjafarfyrirtækis á sviði viðskipta, útflutnings og fjárfestinga. Hann býr yfir áratuga reynslu af samstarfi við fyrirtæki, opinberar stofnanir og fjárfesta um allan heim og hefur leitt uppbyggingu OCO Global í eitt af leiðandi fyrirtækjum á sínu sviði.
16:00 Pallborðsumræður: Tækifæri Suðurnesja
Hvernig geta lykilaðilar á Suðurnesjum unnið saman að næsta vaxtarskeiði svæðisins?
Þátttakendur í pallborði:
Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins
Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Suðurkjördæmis
Styrmir Hafliðason, framkvæmdastjóri Verne
Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri Samherja fiskeldis
Páll Erland, forstjóri HS Veitna
Bergur Ebbi fundarstjóri stýrir umræðum
16:40 Áfram veginn
Bergur Ebbi saman helstu þemu dagsins, setur þau í stærra samhengi og varpar fram áhugaverðri sýn á framtíðina.
16:50: Léttar veitingar í tilefni af 20 ára afmæli Kadeco
Hljómsveitin Þríó leikur ljúfa tónlist og boðið verður uppá drykki og veitingar.
