fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Frumkvöðla Auður

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr FrumkvöðlaAuði fyrir árið 2025 og er umsóknarfrestur til 10. júní 2025.

FrumkvöðlaAuður er sjálfseignarstofnun sem stofnuð var af Auði Capital árið 2009. Í upphafi hét stofnunin AlheimsAuður og er markmið hennar að vera góðgerðarsjóður með það að meginstefnu að hvetja konur til athafna og frumkvæðis, einkum í þróunarlöndum. Sjóðurinn hefur þó í seinni tíð litið nær sér í styrkveitingum með áherslu á frumkvöðlastarf kvenna.

Sjóðurinn getur tekið á móti fjárframlögum hvort sem er frá stofnanda eða öðrum sem vilja veita markmiðum hans brautargengi.

Stjórn sjóðsins skipa:

  • Anna Rut Ágústsdóttir, formaður
  • Hrund Ólafsdóttir
  • Vaka Jóhannesdóttir

Í umsókn skal vera greinargóð lýsing á verkefninu, markmiði og tilgangi þess, stutt með viðeigandi gögnum s.s. viðskiptaáætlun, upplýsingum um fjármögnun verkefnis og eignarhald. Umsókn skal skilað á netfangið frumkvodlaaudur@kvika.is til og með 10. júní nk.

Þurfir þú aðstoð vegna umsókna eða frekari upplýsingar má hafa samband hér

Skipulagsskrá sjóðsins má finna hér.

Umsóknarfrestur er til og með 10. júní nk.

Haft verður samband við þá aðila sem hljóta styrk.