Hacking Reykjanes – hackathon
Í dag hefst skráning á lausnarmótið Hacking Reykjanes sem fram fer dagana 17. – 19. mars en verkefnið er styrkt af Lóu og Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og unnið í samstarfi við Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum og Hacking Hekla sem ferðast hefur um landið með slíka nýsköpunarviðburði.
- Þátttakendur vinna að því að þróa lausnir við fjórum áskorunum:
- Hvernig getum við aukið verðmætasköpun með því að nýta orkuna á Reykjanesi?
- Hvernig getum við stuðlað að nýsköpun og þróun í sjávarútvegi og tengdum greinum?
- Hvernig getum við aukið verðmætasköpun þvert á atvinnugreinar með aukinni fullvinnslu afurða til að koma í veg fyrir að auðlindir verði að úrgangi?
- Hvar liggja tækifærin í nýsköpun og aukinni þjónustu í tenglum við alþjóðaflugvöll, ferðaþjónustu og þjónustu við farþega og flug?
Lausnamótið er fyrir alla sem vilja hugsa í lausnum og leysa vandamál og áskoranir sem finnast í mismunandi landshlutum Þátttakendur þurfa ekki að búa yfir reynslu eða hafa tekið þátt áður í lausnamóti eða öðru frumkvöðlastarfi. Allir eru velkomnir og þetta er góð leið til að efla skapandi hugsun og þjálfast í ferlinu að koma góðum hugmyndum í framkvæmd.
Hefurðu áhuga á að skipuleggja lausnamót á þínu svæði?
Skráning fer fram á hackinghekla.is
Hacking Reykjanes is a joint project of Hacking Hekla, Samband sveitafélaga á Suðurnesjum and Hugmyndaþorp. The project is funded by Lóa.