Hildigunnur Marín Kristinsdóttir ráðin verkefnastjóri miðlunar hjá SSS
Hildigunnur Marín Kristinsdóttir hefur verið ráðin í starf verkefnastjóra miðlunar hjá Samtökum sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS). Hún hefur þegar hafið störf.
Hildigunnur er fædd og uppalin í Grindavík og er búsett í Reykjanesbæ. Hún er með BA-gráðu í markaðsfræði og samskiptum frá IED og University of Westminster og er nú að ljúka MS-gráðu í markaðsfræði við Háskólann á Bifröst. Hildigunnur býr yfir reynslu af markaðs- og sölustörfum innan ferðaþjónustunnar og hefur ríkan áhuga á markvissri og áhrifaríkri markaðs- og upplýsingamiðlun. Hún kemur til starfa hjá SSS úr ferðaþjónustunni þar sem hún hefur sinnt sölu- og markaðsmálum, meðal annars hjá Courtyard by Marriott.
Í starfi sínu mun Hildigunnur sinna upplýsingamiðlun og samskiptum fyrir SSS með áherslu á stafræna miðla, efnisgerð og kynningu á verkefnum samtakanna. Hún mun jafnframt vinna náið með Markaðsstofu Reykjaness, Reykjanes jarðvang og Heklunni – atvinnuþróunarfélagi Suðurnesja að miðlun á málefnum svæðisins.
„Þetta er spennandi tækifæri og ég hlakka til að takast á við þetta nýja hlutverk. Ég mun leggja áherslu á að miðlun og upplýsingagjöf um verkefni á Suðurnesjum séu skýr og aðgengileg, bæði fyrir íbúa, sveitarfélög, fyrirtæki á svæðinu og einnig fyrir ferðamenn sem sækja svæðið heim. Mér finnst mikilvægt að miðlun styðji við gott samstarf og áreiðanlega mynd af því sem er að gerast á svæðinu.“ Segir Hildigunnur Marín Kristinsdóttir.
Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum býður Hildigunni velkomna til starfa.