fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Reykjanesviti

Nýsköpun á ferð og flugi

Fulltrúar frá KLAK – Icelandic Startups, Íslandsstofu og Tækniþróunarsjóði heimsækja íbúa Suðurnesja og bjóða upp á opna kynningarfundi fyrir frumkvöðla, sprota og fyrirtæki sem eru að þróa lausnir framtíðarinnar og vilja vaxa og sækja á nýja markaði.

Á dagskránni verða þrjú 20 mínútna erindi:

𝐊𝐋𝐀𝐊: Stuðningsleiðir, hraðlar og tækifæri fyrir sprota á öllum stigum

Íslandsstofa: Aðgangur að alþjóðamörkuðum, erlendri fjármögnun og erlendum samstarfsaðilum

Tækniþróunarsjóður: Styrkir og ráðgjöf fyrir hugmyndir, þróunarverkefni og ný tækifæri.

Að loknum erindum gefst tími fyrir 𝐬𝐩𝐮𝐫𝐧𝐢𝐧𝐠𝐚𝐫 𝐨𝐠 𝐬𝐚𝐦𝐭𝐚𝐥 þar sem gestir geta rætt sín verkefni, fengið ráðgjöf og tengst beint við fulltrúa allra þriggja stofnana, auk þess sem ráðgjafi á vegum Heklunnar, atvinnuþróunarfélagi Suðurnesja verður á staðnum og býður upp á ráðgjöf.

Nánari upplýsingar: