Samþykkt ályktun um samgöngumál
Ályktun um greiðar, vistvænar og öruggar samgöngur milli höfuðborgarsvæðis og Suðurnesja
Meðfylgjandi ályktun var samþykkt á sameiginlegum fundi svæðisskipulagsnefnda höfuðborgarsvæðisins og Suðurnesja sem haldinn var á Ásbrú, Reykjanesbæ föstudaginn 12. maí 2023.
Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja og svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðis funda í dag í fyrsta skipti til að ræða sameiginleg viðfangsefni og hagsmunamál og til að leggja grunn að öflugra samstarfi milli svæðanna í framtíðinni. Svæðisskipulagsnefndirnar eru sammála um að höfuðborgarsvæðið og Suðurnesin eru hluti af einu vinnusóknar- og búsetusvæði, og að lífsgæði og samkeppnishæfni svæðanna grundvallist á, greiðum, vistvænum og öruggum samgöngum fyrir atvinnulíf, gesti og íbúa.
Nefndirnar hvetja ríkisstjórnina að beita sér fyrir bættum samgöngum milli svæðanna, fyrir alla ferðamáta. Þar verði lögð sérstök áhersla á að:
- Staðið verði við fyrirliggjandi áform um aðskilnað akstursleiða á Reykjanesbraut milli þéttbýlissvæðanna en um hana fara nánast allir ferðamenn sem koma til landsins með flugi. Það er því mikilvægt að klára tvöföldun hennar, bæði fyrir gesti sem fara þar um og ekki síður íbúa Suðurnesja og höfuðborgarsvæðis.
- Svæðin verði tengd saman með tíðum, gæðamiklum almenningssamgöngum með aðgengi fyrir alla sem nýtist íbúum, starfsfólki og flugfarþegum. Bæta þarf sérstaklega aðgengi fólks með skerta hreyfigetu.
- Aðgengi að almenningssamgöngum við Keflavíkurflugvöll verði bætt, til dæmis með því að vagnar sæki og sleppi farþegum upp við flugstöðvarbyggingu, að merkingar fyrir almenningssamgöngur verði í forgrunni í flugstöðvarbyggingu, að greiðslukerfi sé samþætt við greiðslukerfi Suðurnesja og höfuðborgarsvæðis, og að aðgengi fyrir alla sé tryggt.
- Skipulagt verði heildstætt göngustíga- og hjólanet um svæðin, sem tengi saman helstu atvinnu, íbúða, þjónustu- og útivistarsvæði. Lokið verði við að leggja og merkja öruggar hjólaleiðir milli Keflavíkurflugvallar og höfuðborgarsvæðisins.
Nefndirnar telja jafnframt mikilvægt að öryggi veitukerfa, Reykjanesbrautar og annarra samgönguinnviða milli svæðanna sé tryggt með tilliti til almannavarna, veðurs og náttúruvár.
Fyrir nánari upplýsingar má hafa samband við:
- Eysteinn Eyjólfsson, formann svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja s: 698-1404
- Pawel Bartoszek, formann svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins s: 694-6470