fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

SSS hlýtur 21 milljón króna styrk til þróunarverkefna á Suðurnesjum

Innviðaráðuneytið hefur úthlutað samtals 170 milljónum króna til fjórtán verkefna um allt land sem hafa það að markmiði að efla byggðir, styðja við nýsköpun og styrkja atvinnulíf á landsbyggðinni. Verkefnin eru fjölbreytt og beinast meðal annars að uppbyggingu innviða, atvinnuþróun og nýtingu staðbundinna auðlinda.

Styrkirnir eru veittir á grundvelli byggðaáætlunar stjórnvalda, þar sem lögð er áhersla á að efla byggðir með markvissum aðgerðum sem stuðla að aukinni verðmætasköpun, fjölbreyttari atvinnumöguleikum og sterkari samfélögum. Verkefnin sem hljóta stuðning eru talin hafa jákvæð áhrif til lengri tíma, bæði fyrir atvinnulíf og lífsgæði íbúa á viðkomandi svæðum.

Markmið úthlutunarinnar er að styðja við sjálfbæra þróun byggða um land allt og skapa tækifæri til nýsköpunar og vaxtar. Slíkar fjárfestingar eru mikilvægur þáttur í að styrkja staðbundið samfélag og auka seiglu svæða til framtíðar.

Tvenn verkefni á vegum Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) hlutu styrk að þessu sinni, samtals að upphæð 21 milljón króna.

Eldfjallaleiðin – markaðssetning og miðlun

Styrkupphæð: 4,5 m.kr.

Eldfjallaleiðin er samstarfsverkefni Markaðsstofu Reykjaness og Markaðsstofu Suðurlands sem miðar að því að miðla þekkingu um eldvirkni, áhrif hennar á náttúru og samfélög og skapa virðisaukandi tækifæri í ferðaþjónustu. Ferðaleiðin var þróuð af íbúum og ferðaþjónstuaðilum. Styrkur verður nýttur til að fjármagna markaðssetningu, samræmda framsetningu og þróun verkfæra sem styðja ferðaþjónustuaðila, sveitarfélög og gesti með aðlaðandi, jákvæðri og uppbyggilegri miðlun.

Grindavík – saman í sókn

Styrkupphæð: 16,5 m.kr.

Verkefnið miðar að því að skapa samfellu í uppbyggingu samfélags og atvinnulífs í kjölfar hamfara. Með samstarfi, þjálfun, markaðssetningu og virkni samfélagsins á að stuðla að sjálfbærri endurreisn, seiglu og framtíðarsýn. Verkefnið byggir á reynslu og árangri fyrri áfanga og miðar að því að styrkja samstöðu, auka þátttöku og efla jákvæða ímynd bæjarins.

Úthlutunin er mikilvægur liður í að styðja við sjálfbæra þróun og styrkja byggðir landsins. Fyrir Suðurnesin felur hún í sér áframhaldandi uppbyggingu, aukna samvinnu og markvissa þróun verkefna sem hafa áhrif á samfélag og atvinnulíf.