Markaðsstofa Reykjaness
Markaðsstofa Reykjaness MR er samstarfsvettvangur Reykjanesskagans í markaðssetningu á ferðaþjónustu svæðisins. Helsta hlutverk hennar er að samræma markaðs- og kynningarmál ferðaþjónustu á Reykjanesi gagnvart innlendum og erlendum ferðamönnum.
Verkefni stofunnar taka mið af áherslum sem koma fram í Áfangastaðaáætlun Reykjaness:
- Markaðssetning áfangastaðarins
- Verðmætasköpun og vöruþróun
- Mannauður, fræðsla og þekking
- Gögn og rannsóknir
- Upplýsingamiðlun og öryggi
- Umhverfi og uppbygging áningarstaða
Forstöðumaður Markaðsstofu Reykjaness er Þuríður Halldóra Aradóttir Braun.
Verkefnastjóri miðlunar og markaðssetningar er Eyþór Sæmundsson.