Aðstoð við markaðssetningu
Markaðsstofa Reykjaness býður samstarfsfyrirtækjum að taka þátt í þróunar- og markaðsstarfi fyrir Reykjanes.
Samstarfsfyrirtæki eru virkur aðili í:
- mótun og þróun ferðamála í landshlutanum
- markaðssetningu áfangastaðarins.
Með samstarfi fær fyrirtækið m.a.:
- aðgang að markaðs- og kynningarefni fyrir svæðið.
- aukinn sýnileika í markaðs- og kynningarefni áfangastaðarins. s.s. visitreykjanes.is.
- tækifæri til að taka þátt í markaðsátaki fyrir svæðið, blaðamannaferðum og FAM-kynnisferðum.
- tækifæri til að taka þátt í Mannamóti Markaðstofa landshlutanna.
Aðilar að Markaðsstofu Reykjaness eru allir með tilskilin leyfi til atvinnurekstrar og taka þátt í að móta og þróa Reykjanesið sem vænlegan áfangastað fyrir gesti.
Gjaldskrá má nálgast hér.
Það er einfalt að gerast samstarfsaðili. Skráðu þig hér eða hafðu samband í síma 420 3288 eða sendu okkur fyrirspurn á info@visitreykjanes.is og við höfum samband við þig.