fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Norðurslóðaáætlunin – Umsóknarfrestur til 30. nóvember 2015

NPA:  Umsóknarfrestur til 30. nóvember 2015
Norðurslóðaáætlunin (NPA) styrkir samstarfsverkefni a.m.k. þriggja aðildarlanda, löndin innan NPA eru Ísland, Grænland, Færeyjar, Noregur Svíþjóð, Finnland, Írland, Norður-Írland og Skotland. NPA  óskar núna aðeins eftir styrkumsóknum sem falla undir áherslur 3 og 4:
3.  Verkefni sem hlúa að og efla orkuöryggi samfélaga á norðurslóðum,  hvetja til orkusparnaðar eða notkun endurnýjanlegra orkugjafa.
4.  Verkefni sem vernda, þróa og koma á framfæri menningarlegri og náttúrlegri arfleið.

Nánari upplýsingar um áherslur á þriðja umsóknarfresti er að finna hér.

Hámarksstærð verkefna er 2 milljónir evra og er styrkur háður a.m.k. 40% mótframlagi umsóknaraðila en styrkur til fyrirtækis er háður a.m.k. 50% mótframlagi. 
Mikilvægt er að verkefnin skili af sér afurð, vöru og/eða þjónustu sem eflir atvinnulíf, búsetu og/eða eykur öryggi íbúa á norðurslóðum.

Á heimasíðu NPA www.interreg-npa.eu er að finna umsóknargögn og leiðbeiningar  undir valtakanum ,,For Applicants“ ,, Third Calls“ Senda á umsóknina rafrænt eigi síðar
en á miðnætti 30. nóvember n.k. á Kaupmannahafnartíma. A How to Apply Seminar verður haldið í Kaupmannahöfn 20. október n.k.
Nánari upplýsingar og ráðgjöf má fá hjá tengiliði NPA á Íslandi sem er Sigríður Elín Þórðardóttir, Byggðastofnun sími 455 5400 og netfang sigridur@byggdastofnun.is