fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Hljóðmælingar við Grænás nú aðgengilegar á vef Isavia

Isavia hefur opnað fyrir niðurstöður mælinga við Grænás á áhrifum flugumferðar á íbúa og byggð.  Á vef þeirra geta íbúar fylgst með hljóðstigi frá flugumferð á rauntíma og gert betur grein fyrir því í ábendingum hvaða flug skapa ónæði, segir á heimasíðu Isavia. 
 
Á íbúafundi sem Isavia hélt um miðjan maí sl. kom fram að mælistöðvar yrðu þrjár í Reykjanesbæ, ofan við Eyjabyggð og við Háaleitisskóla til viðbótar við Grænás. Um er að ræða fyrsta fasa kerfisins sem hefur verið settur í loftið, en í fasa tvö verða flugupplýsingar tengdar við hljóðmælingarnar. Einnig er stefnan  að setja upp loftgæðamæla, að því er fram kom á áðurnefndum íbúafundi.
 
 
Samkvæmt upplýsingum á vef Umhverfisstofnunar eru hættumörk hávaða talin vera við 80 – 85 dB jafngildishljóðstig eða við styttri hljóðtoppa 120 – 130 dB. Hljóð frá þotu í flugtaki í 200 m fjarlægð er þar sögð vera 100 dB.
 
Hér má nálgast niðurstöður hljóðmælinga við Grænás: