fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Opið fyrir umsóknir Átak til atvinnusköpunar

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átaki til atvinnusköpunar. Veittir eru styrkir til nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja.

Markmið verkefnis er að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta og að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða í frumkvöðla- og sprotafyrirtækjum.
Styrkir geta að hámarki numið 50% af heildarkostnaði verkefnisins og ekki eru veittir styrkir til fjárfestinga s.s. tækjum og búnaði.
Sérstök áhersla er lögð á

Verkefni sem eru nýjung og skapa ný störf

Nýsköpun og/eða samstarfsverkefni sem byggir á hönnun

Nýsköpun sem á sér stað í klasasamstarfi

Verkefni sem eru að stíga fyrstu skref á alþjóðamarkaði

Umsóknarfrestur er til hádegis fimmtudaginn 8. september 2016
Frekari upplýsingar og rafræn eyðublöð má nálgast með því að smella hér. Einnig má senda beiðni um upplýsingar og aðstoð á netfangið hildur@nmi.is