fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Átak til atvinnusköpunar

Átak til atvinnusköpunar hefur auglýst lausa til umsóknar styrki en umsóknarfrestur haustið 2012 er 20. september.Átak til atvinnusköpunar er styrkáætlun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins fyrir nýsköpunarverkefni og markaðsaðgerðir starfandi frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtækja. Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur umsjón með umsóknarferlinu fyrir hönd atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.Umsóknarfrestur haustið 2012 er 20. september.
Markmið verkefnisins:
    Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta.
    Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða í frumkvöðla og sprotafyrirtækjum.
Styrkir geta að hámarki numið 50% af heildarkostnaði verkefnisins en ekki er veittur styrkur til fjárfestinga.Afar mikilvægt er að umsóknir séu vel gerðar og að öll gögn fylgi með þeim. Sé umbeðnum gögnum ekki skilað fyrir auglýstan umsóknarfrest, áskilur stjórn Átaks til atvinnusköpunar sér rétt til að hafna umsókn.Munið að það getur verið gott að fá aðra til að lesa yfir umsóknir af þessu tagi og koma með ábendingar. Hægt er að panta viðtal hjá ráðgjafa Heklunnar eða senda póst á heklan@heklan.isNánar