fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Ný íbúakönnun á mælaborði Byggðastofnunar

Nýjar niðurstöður úr íbúakönnun landshlutanna eru nú aðgengilegar í mælaborði Byggðastofnunar.

Tilgangurinn með íbúakönnuninni er að meta viðhorf íbúa til búsetuskilyrða, aðstæðna á vinnumarkaði og afstöðu til nokkurra mikilvægra atriða, s.s. hamingju og hvort íbúar séu á förum frá landshlutanum. Könnunin fór fram á netinu veturinn 2023-2024 og var send út á íslensku, ensku og pólsku. Alls fengust um 12 þúsund svör. Skýrsla um könnunina kom út í júní síðastliðnum.

Vífill Karlsson, Ph.D. í hagfræði hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, hafði yfirumsjón með skipulagi og framkvæmd könnunarinnar, ásamt því að vinna úr niðurstöðum með Hrafnhildi Tryggvadóttur hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi. Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri safnaði netföngum og mat stærð úrtaks.

Byggðastofnun hefur birt könnunina í mælaborði þar sem hægt er að skoða niðurstöður hennar eftir bakgrunni svarenda og bera saman búsetuþætti á 25 svæðum. Í mælaborðinu er hægt að einangra svör ákveðins hóps, til dæmis aldurshópsins 18-34 ára eða Þingeyinga, með því að smella á viðkomandi hóp á súluritum eða í töflum. Þar er jafnframt hægt að skoða stöðu og mikilvægi 40 búsetuþátta, bæði eftir svæðum og innan svæða. Niðurstöður tveggja eldri íbúakannanna, frá 2016/2017 og 2020, eru einnig aðgengilegar í mælaborðinu.