Reykjanes kynnt á ferðasýningunni ITB Berlin
Markaðsstofa Reykjaness tók þátt í ferðasýningunni ITB Berlin í Þýskalandi dagana 3.–5. mars, einni stærstu og mikilvægustu ferðaþjónustusýningu heims. Á sýningunni koma saman þúsundir sýnenda og ferðafagfólks frá yfir 160 löndum og er hún mikilvægur vettvangur fyrir samtal, tengslamyndun og viðskipti í alþjóðlegri ferðaþjónustu.
Íslandsstofa skipuleggur íslenska þátttöku á sýningunni þar sem íslensk ferðaþjónustufyrirtæki og markaðsstofur landshlutanna kynna vörur sínar, þjónustu og upplifanir fyrir alþjóðlegum ferðakaupendum og samstarfsaðilum í greininni.
Hildigunnur M. Kristinsdóttir, verkefnastjóri miðlunar hjá Markaðsstofu Reykjaness, sótti sýninguna fyrir hönd markaðsstofunnar og átti þar fundi og samtöl við ferðaskrifstofur, ferðaskipuleggjendur og aðra samstarfsaðila í ferðaþjónustu.
„ITB Berlin er mikilvægur vettvangur til að efla tengsl við alþjóðlega samstarfsaðila og kynna þau tækifæri sem Reykjanes hefur upp á að bjóða. Slíkir viðburðir skapa einnig mikilvægt samtal um þróun ferðaþjónustu og samstarf milli svæða,“ segir Hildigunnur.
Ferðaþjónustufyrirtæki sem starfa á Reykjanesi tóku einnig þátt í sýningunni, þar á meðal Blue Lagoon, Bus4u Iceland, Blue Car Rental, Icelandia og Prime Tours, sem kynntu þjónustu sína og upplifanir fyrir alþjóðlegum ferðakaupendum og samstarfsaðilum.
Ferðaþjónusta er ein af mikilvægustu atvinnugreinum á Suðurnesjum og þátttaka í alþjóðlegum ferðasýningum á borð við ITB Berlin er liður í að styrkja stöðu svæðisins á alþjóðlegum ferðamarkaði og efla tengsl við erlenda samstarfsaðila.

Fulltrúar frá markaðsstofum Reykjaness, Austurlands, Reykjavíkur, Norðurlands og Suðurlands.