Farsæld barna mælist best á Suðurnesjum 2030

Á annað hundrað manns komu saman í samkomuhúsi Sandgerðis, á fyrsta farsældarþingi Suðurnesja. Markmið dagsins var skýrt að teikna upp í sameiningu, þá þjónustu sem fylgir börnum á Suðurnesjum frá meðgöngu til loka framhaldsskóla og finna leiðir til að gera hana enn betri.
Þingið er einn mikilvægasti áfanginn í innleiðingu farsældarlaganna (nr. 86/2021) í landshlutanum. Lögin kalla á að þjónusta við börn vinni saman sem ein heild, þvert á skóla, heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, lögreglu og frístundastarf. Farsældarþingið er vettvangur til að gera þá heild áþreifanlegri, með reynslu fagfólks, foreldra og ungmenna að leiðarljósi.
„Þessi upplifun hér í Sandgerði í dag var einstök. Fagfólk sem venjulega hittist sjaldan settist saman, stillti saman strengi og hannaði lausnir hlið við hlið. Þetta er einmitt sú þverfaglega tenging sem farsældarlögin snúast um. Við erum ekki að byggja þjónustuna frá grunni, við byggjum á þeirri reynslu og fagþekkingu sem til staðar er á Suðurnesjum. Með því að tengja saman það góða starf sem þegar er unnið verður til ein samfelld þjónustukeðja í kringum hvert barn.“ segir Hjördís Eva Þórðardóttir, verkefnastjóri farsældar barna á Suðurnesjum.

Reynsla í forgrunni
Dagurinn byggði á einfaldri en kraftmikilli hugmynd, að þau sem þekkja þjónustuna best, fólkið sem mætir börnum og fjölskyldum á hverjum degi, foreldrar og börnin sjálf, séu best til þess fallin að móta hana. Þátttakendum var skipt á sextán borð eftir aldursskeiðum, allt frá meðgöngu og fyrstu árunum upp í framhaldsskóla.
Við hvert borð á þinginu sat þverfaglegur hópur. Þar mættust leikskólakennarar, kennarar, ljósmæður, hjúkrunarfræðingar, sálfræðingar, sérkennarar, félagsráðgjafar, frístundaleiðbeinendur, náms- og starfsráðgjafar, fulltrúar lögreglu og fleira fagfólk, ásamt foreldrum og ungmennum.

Reynsla barnsins í forgrunni
Í stað hefðbundinna erinda var unnið eftir aðferð sem kennd er við mannmiðaða hönnun. Þar er byrjað á reynslu barnsins og foreldra þess áður en horft er á kerfin. Hver hópur fylgdi tiltekinni fjölskyldu gegnum daginn, kortlagði leið hennar gegnum þjónustuna og skoðaði hvar tengingar milli kerfa virka vel og hvar hætta er á að börn falli milli kerfa.
Undir lok dags hannaði hvert borð raunhæfar lausnir sem hægt er að prófa. Niðurstaðan varð sameiginleg mynd af þjónustukeðjunni, eins og hún birtist barninu og fjölskyldunni, ásamt fjölda áþreifanlegra hugmynda að úrbótum.
„Ég er stolt af því starfi sem fer fram hér á Suðurnesjum.“ Þátttakandi á þinginu, starfar í frístundastarfi.
„Dásamlegt að vera með og heyra hvað aðrir sjá og finna leiðir til lausna sem við sjálf sjáum ekki alltaf.“ Þátttakandi á þinginu, leikskólakennari.
Næstu skref
Að baki þinginu liggur metnaðarfull sýn farsældarráðs Suðurnesja: að Suðurnesin verði sá staður þar sem farsæld barna mælist best á Íslandi árið 2030. Sýnin snýst ekki um eitt verkefni eða eina stofnun, heldur um að öll þau kerfi sem umlykja barnið vinni saman, með hag þess að leiðarljós.
Afrakstur dagsins fer nú í úrvinnslu hjá farsældarráðiSuðurnesja. Unnið verður með þjónustuferla á hverju aldursskeiði, kortlagningu snertiflata milli kerfa og frumgerðir að lausnum sem mótaðar voru á þinginu. Framkvæmdahópur ráðsins mun forgangsraða tillögum og velja lausnir til frekari þróunar og prófunar .
Niðurstöðurnar mynda grunn að fyrstu fjögurra ára aðgerðaáætlun farsældarráðs um farsæld barna á Suðurnesjum. Þingið er þannig ekki afmakaður viðburður heldur skref í markvissri vegferð sem heldur áfram á komandi misserum.

Um farsældarráð Suðurnesja
Farsældarráð Suðurnesja er fyrsta svæðisbundna farsældarráðið á Íslandi, stofnað 23. júní 2025. Að því standa öll sveitarfélögin á Suðurnesjum, Reykjanesbær, Suðurnesjabær, Sveitarfélagið Vogar og Grindavíkurbær, ásamt Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum. Auk sveitarfélaganna eiga helstu þjónustuveitendur í þágu barna á svæðinu aðild að ráðinu: Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Heilsugæslan Höfði, Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, Sýslumaðurinn á Suðurnesjum og Svæðisstöð íþróttahéraða á Suðurnesjum, auk Framkvæmdanefndar vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ. Þá eiga fulltrúar foreldra og ungmenna sæti við borðið, svo raddir þeirra sem þjónustan snýst um heyrist frá fyrsta degi.
Ráðið starfar á grundvelli laga nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
