Hjarta Ásbrúar verður að veruleika – nýr samverustaður fyrir börn og fjölskyldur
Hjarta Ásbrúar, nýtt samfélagshús fyrir börn og fjölskyldur, opnaði í Andrews Theater í dag.

Hugmyndin kom frá börnunum sjálfum. Vorið 2024 mótuðu 400 börn í Háaleitisskóla framtíðarsýn fyrir hverfið í samráðsverkefninu Börnin að borðinu, sem hlaut Hönnunarverðlaun Íslands 2024. Í verkefninu kölluðu börnin eftir miðlægu hjarta á Ásbrú, stað til að koma saman, leika og hafa gaman. Í dag rætist sú ósk. Hjarta Ásbrúar er samverustaður fyrir alla fjölskylduna, þvert á kynslóðir og tungumál.
Ásbrú er meðal fjölbreyttustu samfélaga landsins. Í Háaleitisskóla, eina grunnskóla hverfisins, eru 70% nemenda af erlendum uppruna og á meirihluta heimila er annað móðurmál en íslenska. Háaleitisskóli er Réttindaskóli UNICEF og hlaut nýlega Íslensku menntaverðlaunin.
Faglegur grunnur og framkvæmd
Hjarta Ásbrúar er liður í innleiðingu farsældarlaganna á Suðurnesjum og hvílir á öflugu starfi sem þegar er unnið í hverfinu. Farsældarráð Suðurnesja hefur kortlagt þjónustu og þarfir barna á svæðinu og lagt faglegan grunn að verkefninu. Fjörheimar og Íþróttabandalag Reykjanesbæjar annast daglega framkvæmd miðstöðvarinnar. Fjörheimar með kraftmiklu félagsmiðstöðva- og forvarnastarfi og ÍRB með skipulagi íþróttastarfs í samstarfi við íþróttafélögin í Reykjanesbæ. Svæðisstöð íþróttahéraða á Suðurnesjum hefur unnið í samstarfi við íþróttahreyfinguna markvisst að því að efla þátttöku barna og ungmenna í tómstundum þvert á landshlutann síðustu ár. Hér kemur því þjónusta við börn og fjölskyldur saman á einum stað, í nærumhverfi þeirra.

„Það er frábært að þessi flotta hugmynd sé að raungerast þar sem það er mikilvægt að öll börn geti tekið þátt í skipulögðu starfi í sínu nærumhverfi. Það er ánægjulegt að íþróttabandalagið geti lagt sitt af mörkum í jafn verðugt verkefni og þetta.“ segir Guðni Erlendsson, framkvæmdastjóri ÍRB.
Fjölbreytt starf í sumar
Starfið sem boðið verður upp á í sumar er fjölbreytt. Foreldramorgnar verða á föstudögum fyrir foreldra í fæðingarorlofi. Keflavík og Njarðvík bjóða gjaldfrjáls fótbolta- og körfuboltanámskeið í miðstöðinni í sumar. Leiklistarsmiðjur fyrir fullorðna verða á laugardögum. Á þriðjudögum og miðvikudögum verða fjölskylduopnanir þar sem hægt er að mæta með mat á grillið og leika sér. Leikir HM í fótbolta verða einnig sýndir á risaskjá í bíósal hússins. Opin hús verða fyrir unglinga í 8. til 10. bekk í samstarfi við Flotann. Allt starf er án kostnaðar og án skráningar.
Brúin yfir í haustið
Hjarta Ásbrúar tengir saman tvo öfluga vettvanga, íþróttahreyfinguna og starf félagsmiðstöðva í Reykjanesbæ. Börn eru ólík að uppruna, áhuga og styrkleikum. Í Hjarta Ásbrúar er hverju barni mætt þar sem það er, og opnaðar leiðir inn í samfélag, tómstundir og virkni til framtíðar.
Starfið í sumar er fyrsta skrefið. Það er opið og án skráningar, svo engir þröskuldar standi í vegi. Markmiðið er að tengja börnin inn í reglubundið starf í íþróttum og tómstundum í haust.
Bakhjarlar verkefnisins
Að baki verkefninu stendur breiður hópur bakhjarla. Íþróttabandalag Reykjanesbæjar og Njarðvík hlutu styrk frá ráðuneyti mennta og barnamála til verkefnisins. Hjarta Ásbrúar var meðal verkefna sem ráðuneytið valdi sérstaklega til að efla farsæld barna. Kadeco styður reksturinn og veitir faglegt bakland. Fasteignafélagið Bjartavík leggur Andrews Theater til leigulaust. Íþróttafélögin Keflavík og Njarðvík bjóða gjaldfrjáls sumarnámskeið í fótbolta og körfubolta. Isavia, Háaleitisskóli og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum styðja jafnframt við verkefnið. Þessir styrkir eru hornsteinar verkefnisins og gera kleift að bjóða allt starf án kostnaðar og án skráningar.
„Þetta er staðurinn sem börnin sjálf báðu um. Hér eiga öll börn í hverfinu samastað, sama hvaðan þau koma,“ segir Thelma H. Hermannsdóttir, verkefnastjóri Hjarta Ásbrúar.






