fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Endurmenntunarferð kennara til Danmerkur styrkir sjálfbærni- og útikennslu í UNESCO skólum

Endurmenntunarferð kennara til Danmerkur fór fram dagana 15.–19. mars þegar níu kennarar af Reykjanesi tóku þátt í verkefninu „Tides of Change“.

endurmenntunarferð kennara Danmörk UNESCO skólar

Endurmenntunarferð kennara til Danmerkur

Dagana 15.–19. mars tók níu manna hópur kennara af Reykjanesi þátt í endurmenntunarferð til Danmerkur. Ferðin er hluti af verkefninu „Tides of Change: Sustainability and Climate Awareness in Coastal Regions through UNESCO School Collaboration“.

Verkefnið er leitt af Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum í samstarfi við GeoCamp Iceland, Reykjanes UNESCO Global Geopark og alla grunnskóla á svæðinu. Markmiðið er að efla loftslagsfræðslu, haflæsi og vettvangsnám í gegnum alþjóðlegt samstarf UNESCO skóla.

Verkefnið er styrkt af Erasmus+ og er hluti af KA1 náms- og endurmenntunarferðum kennara.

Áhersla á sjálfbærni og útinám

Þátttakendur komu frá átta af tíu grunnskólum innan Reykjanes jarðvangs og eru allir virkir í UNESCO starfi sinna skóla. Sameiginleg áhersla hópsins er á sjálfbærni, útikennslu og kennsluhætti sem tengja nemendur við náttúruna.

Ferðin fól í sér vettvangsheimsóknir og starfsnám hjá UNESCO skólum og jarðvöngum í Danmörku. Fyrsta heimsóknin var í Odsherred UNESCO Global Geopark, þar sem kynntar voru fjölbreyttar aðferðir í útikennslu og vettvangsnámi. Þar kom skýrt fram hvernig jarðvangar geta stutt skóla við að þróa átthagafræði og styrkja tengsl samfélags við náttúruna.

Heimsóknir í skóla og nýjar nálganir

Í framhaldi var Rantzausminde School í Svendborg heimsóttur. Skólinn er staðsettur innan jarðvangsins Geopark Det Sydfynske Øhav á Suður-Fjóni. Skólinn leggur áherslu á alþjóðlegt samstarf, menningarlæsi og verklega kennslu, með góðri aðstöðu fyrir skapandi greinar og tæknivinnu.

Einnig var farið í heimsókn í Revsvindinge Friskole, þar sem þátttakendur kynntust hugmyndafræði dönsku frískólanna. Þar bera foreldrar ábyrgð á rekstri skólanna, sem gefur innsýn í annað skipulag skólastarfs og aukna samfélagslega þátttöku í menntun.

Sjálfbærni í verki

Sérstök áhersla var lögð á sjálfbærni í heimsókn til Holluf Pile School í Odense. Skólinn hefur verið UNESCO skóli um árabil og vinnur markvisst með sjálfbærni í kennslu. Þar var kynnt verkefnið „Fra haver til maver“, þar sem nemendur rækta, uppskera og elda eigin mat. Verkefnið tengir saman umhverfisvitund, fæðuþekkingu og verklega kennslu í útinámi.

Ferðinni lauk með þátttöku á Big Bang Conference í Odense, þar sem kynntar voru nýjar kennsluaðferðir, vinnustofur og kennslugögn á sviði raunvísinda og útikennslu.

Nýtist í skólastarfi á Reykjanesi

Endurmenntunarferðin er hluti af stærra Erasmus+ verkefni sem miðar að því að efla hæfni kennara í loftslagsfræðslu, sjálfbærni og útinámi. Jafnframt styrkir verkefnið samstarf UNESCO skóla og jarðvanga á strandsvæðum.

Þekking og reynsla sem aflað var í ferðinni mun nýtast í skólastarfi á Reykjanesi. Hún styður meðal annars við þróun kennsluáætlana, vettvangsnám og innleiðingu UNESCO sjálfbærnivika í skólum svæðisins.

kennarar saman komnir