fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Hættustig almannavarna á Reykjanesi

Tilkynning frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra:

  • Hættustig almannavarna á Reykjanesi og höfuðborgarsvæðinu vegna jarðskjálftahrinu

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu, lögreglustjórann á Suðurnesjum og Veðurstofu Íslands, lýsir yfir hættustigi almannavarna vegna öflugrar jarðskjálftahrinu sem nú gengur yfir á Reykjanesi.

Hættustig almannavarna er sett á til að samhæfa aðgerðir og verklag ýmissa verklagsaðila og stofnana og hefur ekki áhrif á almenning. Hættustig er sett á ef heilsu og öryggi manna, umhverfis eða byggðar er ógnað af náttúru- eða mannavöldum þó ekki svo alvarlegar að um neyðarástand sé að ræða.

Skjálfti af stærð 5,7 mældist um 3,3 km SSV af Keili á Reykjanesi kl. 10:05. Upptök skjálftanna eru á um 20 km. kafla frá Grindavíkurvegi að Kleifarvatni. Fjöldi eftirskjálfta hefur fylgt og hefur sjálfvirka jarðskjálftakerfi Veðurstofu Íslands numið alls 12 skjálfta yfir 4 að stærð frá því hrinan hófst. Síðasti skjálfti mældist 4,8 að stærð kl. 12:37. Skjálftarnir hafa fundist víða á Suðvesturhorninu og allt norður í Húnaþing og vestur á Ísafjörð. Varað er við grjóthruni á Reykjanesskaga á meðan á hrinunni stendur. Unnið er að nánari yfirferð á skjálftavirkni. Athugið að skjálftavirknin er bundin við Reykjanesskaga. Aðrar staðsetningar á skjálftum eru óáreiðanlegar. Engin merki eru um gosóróa á svæðinu.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra fylgist vel með í samvinnu við lögregluembættin á höfuðborgarsvæðinu, á Suðurnesjum og Veðurstofu Íslands.

Lögreglan á Suðurnesjum fer núna um svæðið til að kanna áhrif skjálftans. Þá hefur áhöfn á þyrlu Landhelgisgæslunnar flogið yfir Reykjanes til að kanna aðstæður. Grjót hefur hrunið úr fjöllum á Reykjanesi og hvítir gufustrókar á jarðhitasvæðum hafa sést á svæðinu.

Veðurstofa Íslands hefur hækkað litakóða fyrir flug á Reykjanesi yfir á gult og er það samkvæmt verklagsreglum.

Almannavarnadeild hvetur fólk á þekktum jarðskjálftasvæðum til kynna sér varnir og viðbúnað vegna jarðskjálfta á vefsíðu almannavarna. Þar er einnig að finna leiðbeiningar um viðbrögð eftir jarðskjálfta.

 


Viðbrögð við jarðskjálfta

Ef þú ert innandyra þegar jarðskjálfti byrjar:

  • Haltu kyrru fyrir, mörg slys verða þegar hlaupið er af stað.
  • Farðu undir borð eða rúm, verðu höfuð og háls, haltu þér í sterkbyggð húsgögn.
  • Krjúptu niður í horni við burðarvegg eða í hurðaropi við burðarvegg – athugið að í nýjum húsum eru hurðarop oft ekki sérstaklega styrkt og þar er jafnan hurð sem getur sveiflast til. Gætið fyllstu varúðar og tryggið flóttaleið eftir skjálftann.
  • Verðu höfuð þitt og andlit með kodda ef þú vaknar upp við jarðskjálfta.
  • Haltu þig frá gluggum þar sem þeir geta brotnað.
  • Láttu þína nánustu vita af þér með SMS skilaboðum þegar jarðskjálftinn hættir.

Ef þú ert utandyra þegar þú finnur fyrir jarðskjálfta:

  • Vertu áfram úti og reyndu að finna skjól til að krjúpa, skýla, halda.
  • Reyndu að koma þér frá byggingum sem geta hrunið.
  • Grjóthrun, skriður og snjóflóð geta falið úr hlíðum og fjalllendi.
  • Raflínur eru hættulegar ef þær slitna – varist að snerta þær.
  • Reyndu að komast á opið svæði þar sem byggingar þrengja ekki að.
  • Farðu frá ströndinni ef þú ert á svæði þar sem hætta er á flóðbylgju.

Ef þú ert að keyra þegar þú finnur jarðskjálfta:

  • Leggðu ökutæki og stoppaðu. Vegir og brýr geta skemmst í jarðskjálfta.
  • Hafðu sætisbeltin spennt.
  • Haltu kyrru fyrir ef þú ert í bíl þar sem hann getur varið þig gegn brotum og braki sem hægt er að verða fyrir í jarðskjálfta.
  • Hlustaðu á útvarpið, þar koma jafnan fyrstu upplýsingarnar um jarðskjálftann.
  • Ef vá ber að höndum og hættuástand ríkir verða leiðbeiningar um æskileg viðbrögð almennings gefnar um útvarp og sjónvarp ef kostur er.