Kynningar- og samráðsfundur um landsskipulagsstefnu
Kynningar- og samráðsfundur um gerð landsskipulagsstefnu verður haldinn í Reykjanesbæ, 4.apríl frá kl. 15-17.
Hafin er vinna við gerð viðauka við gildandi landsskipulagsstefnu þar sem mótuð verður nánari skipulagsstefna um loftslagsmál, landslag og lýðheilsu.
Lýsing
Lýsing þar sem gerð er grein fyrir hvernig fyrirhugað er að standa að mótun stefnunnar liggur frammi til kynningar frá 16. mars til 8. apríl 2019. Lýsingin er aðgengileg á landsskipulag.is. Allir eru hvattir til að kynna sér lýsinguna og koma á framfæri ábendingum um nálgun og efnistök til Skipulagsstofnunar. Frestur til að koma á framfæri ábendingum er til 8. apríl 2019. Ábendingar þurfa að vera skriflegar og geta borist bréfleiðis til Skipulagsstofnunar, með tölvupósti á landsskipulag@skipulag.is, eða á athugasemdagátt á landsskipulag.is.
Kynningar- og samráðsfundur
Skipulagsstofnun stendur fyrir kynningar- og samráðsfundum um landið og eru allir sem áhuga hafa hvattir til að koma og kynna sér hvernig fyrirhugað er að standa að mótun landsskipulagsstefnu og taka þátt í umræðum um æskilegar áherslur og aðgerðir í landsskipulagsstefnu varðandi loftslagsmál, landslag og lýðheilsu.
Haldinn verður kynningar- og samráðsfundur á Hótel Park Inn í Reykjanesbæ, 4. apríl 2019 kl. 15-17.
Dagskrá fundar
- Lýsing landsskipulagsstefnu, kynning og umræður
- Umræður um áherslur og aðgerðir í skipulagi um loftslag, landslag og lýðheilsu
Húsið opnar 14.45 og heitt á könnunni.
Allir velkomnir
Nánari upplýsingar á www.landsskipulag.is.