Kynningarfundur um almyrkva
Markaðsstofa Reykjaness og Reykjanes jarðvangur boða til kynningarfundar um almyrkva verður á Íslandi 12. ágúst 2026. Fundurinn fer fram í Hljómahöll, mánudaginn 19. ágúst, kl. 11.00-12.30.
Miðað við þá athygli sem slíkur atburður fær og álag á innviði svæða sem bjóða uppá besta mögulega útsýnið, þá er ekki úr vegi að byrja að huga að kynningarmálum og uppbyggingu innviða fyrir þennan atburð. Reiknað er meðað útsýni á almyrkvann verði með besta móti á Reykjanesi.
Mikill áhugi er meðal ferðamanna víða um heim að berja þennan einstaka atburð augum. Ferðaskrifstofur eru byrjaðar að selja í sérstakar ferðir til Íslands vegna almyrkvans og skemmtiferðaskip byrjuð að bóka hafnir á þessum degi.
Sævar Helgi mætir á fundinn og kynnir fyrir okkur almyrkvann, athyglina sem slíkur atburður hefur haft á önnur svæði og möguleg verkefni sem áhugi á slíkum atburði getur haft á svæði sem best eru til þess fallinn að berja hann augum.
Meðal þess sem verður skoðað er:
- Hegðun ferðamanna.
- Umferð og umferðaröryggi.
- Útsýnisstaðir/ljósmyndastaðir, undirbúningur og þróun. Skilgreina þarf bestu staðina en líklegir eru til dæmis: Garður, Sandgerði, Reykjanestá, Kleifarvatn, Hvalsnes ofl.
- Kynningarmál.
Upplýsingar um atburðinn má finna inn á vefsíðu Sævars (eclipse2026.is).
Nánari upplýsingar um dagskrá verður kynnt frekar þegar nær dregur.