fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Kynningarfundur um landsskipulagsstefnu 2013-2014

Skipulagsstofnun mun í október og byrjun nóvember halda kynningarfundi víða um land þar sem kynnt verður tillaga að landsskipulagsstefnu 2013 – 2024 sem auglýst hefur verið samkvæmt 11. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Á kynningarfundunum munu Stefán Thors og Einar Jónsson kynna:
    Markmið og áhrif landsskipulagsstefnu og staða í skipulagskerfinu    Ferli landsskipulagsstefnu og samráð    Áherslur ráðherra fyrir gerð landsskipulagsstefnu    Helstu forsendur, sviðsmyndir og afmörkun stefnumótunar    Stefna    Skipulagsmál á miðhálendi Íslands    Búsetumynstur og dreifing byggðar    Skipulag á haf- og strandsvæðum    Umhverfismat landsskipulagsstefnu 2013-2024
    Kynningarfundirnir verða á eftirfarandi stöðum:
• Borgarnes 17. október kl. 13:00 á Hótel Hamri• Egilsstaðir 18. október kl. 13:00 á Austurbrú• Blönduósi 24. október kl. 13:00 í Eyvindarstofu• Ísafirði 25. október kl. 13:00 í Bryggjusal, Edinborgarhúsi• Akureyri 26. október kl. 13:30 á Hótel KEA• Reykjavík 30. október kl. 13:00 og kl. 16:00 Borgartúni 6, Rúgbrauðsgerðinni• Reykjanesbæ 31. október kl. 15:00 í Eldey, Grænásbraut 506, Reykjanesbæ• Selfoss 1. nóvember kl. 14:00 (nánari upplýsingar um staðsetningu síðar)
Fundirnir eru haldnir í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaganna og er reiknað með að á fundunum verði um klukkutíma kynning og umræður í um klukkutíma.