fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Kynningarfundur vegna umsókna í uppbyggingarsjóð ferðamannastaða

Fimmtudaginn 12. september standa Ferðamálastofa, Skipulagsstofnun og Miðstöð hönnunar og arkitektúrs að kynningarfundi á Teams fyrir alla þá sem koma að uppbyggingu ferðamannastaða með einum eða öðrum hætti.

Fundurinn er gagnlegur fyrir alla þá sem hafa með skipulags- og/eða ferðamál að gera. Ekki síst ef áform eru um að sækja í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða en opnað verður fyrir umsóknir í lok fundar.

Á fundinum mun Ólafur Árnason, forstjóri Skipulagsstofnunar, kynna nýjar leiðbeiningar um skipulag og leyfisveitingar ferðamannastaða og Hörður Lárusson, hönnuður og einn eigenda Kolofon hönnunarstofu, kynna Vegrúnu, merkingahandbók fyrir ferðamannastaði og friðlýst svæði.
Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir, sérfræðingur hjá Ferðamálastofu, segir frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða en í kjölfar fundarins verður opnað fyrir umsóknir í sjóðinn.

Slóð til að skrá sig á fundinn:
https://events.teams.microsoft.com/event/23a4236a-a16e-458a-bf05-a7d74947a02f@764a306d-0a68-45ad-9f07-6f1804447cd4