Ný vefsíða aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands
Opnuð hefur verið ný vefsíða í tilefni af aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands sem fagnað verður með fjölbreyttri dagskrá um land allt á næsta ári.
Kallað er eftir frumkvæði og þátttöku allra landsmanna vð mótun dagskrár afmælisársins og lögð er áhersla á að ná til sem flestra.
Litið verður til verkefna sem:
- minnast aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands eða hafa skírskotun til þess þáttar í sögu þjóðarinnar
- fjalla um og eða byggja á fullveldishugtakinu
- hvetja til samstarfs
- höfða til barna og ungs fólks og eru til þess fallin að auka þekkingu og innsýn þeirra í söguna
- höfða til fjölbreytts hóps fólks og hvetja til almennrar þátttöku
- draga fram áhugaverða samlíkingu milli fortíðar og nútíðar í sögu ands og þjóðar
- hafa nýstárlega nálgun á þjóðararfinn
- eru til þess fallin að vekja athygli á sérstöðu Íslands í samfélagi þjóðanna
Á vefsíðunni verður hægt að fylgjast með dagskrá afmælisársins og skrá þar inn verkefni. Einnig verður þar að finna fróðleik um árið 1918 og fullveldishugtalið sem og námsefni fyrir skóla.