fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Opin hádegi á þriðjudögum í vetur

Opin hádegi er yfirskrift hádegisfyrirlestra sem haldnir verða á þriðjudögum í vetur í samstarfi Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja, Markaðsstofu Reykjaness, Reykjanes jarðvangs, frumkvöðlasetursins á Ásbrú, Kadeco og Keilis – Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs.
Suðurnesjamenn eru hvattir til þess að mæta og fylgjast með því helsta sem er í deiglunni hvort sem það er á sviði nýsköpunar og fræðslu eða einfaldlega hvetjandi í dagsins önn.
Fyrirlestrarnir verða kynntir jafnóðum og verða þeir haldnir á þriðjudögum, bæði í húsnæði frumkvöðlasetursins á Ásbrú Grænásbraut 506, hjá aðilum í ferðaþjónustu og hjá Keili Grænásbraut 910.
Hægt verður að fylgjast nánar með á síðunni https://heklan.is/opinhadegi og í samfélagsmiðlum skipuleggjenda. Áhugasemir eru jafnframt hvattir til þess að skrá sig á póstlistann hér.