344. fundur S.S.S. 25. nóvember 1993
Árið 1993 er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum fimmtudaginn 25. nóvember kl. 15.00.
Mætt eru: Drífa Sigfúsdóttir, Finnbogi Björnsson, Margrét Gunnarsdóttir, Sigurður Valur Ásbjarnarson, Kristján Pálsson, Björgvin Lúthersson, Jón Gunnarsson, Guðjón Guðmundsson og Jóhanna M. Einarsdóttir ritari.
Dagskrá:
Formaður bauð nýjan fulltrúa Grindavíkur Margréti Gunnarsdóttur velkomna.
1. Bréf dags. 25/10 1993 frá samstarfsaðilum um ferlimál þar sem óskað er eftir styrk til útgáfu handbókar um ferlimál. Stjórnin sér sér ekki fært að verða við erindinu.
2. Bréf dags. í nóv. frá FÍA og Landgræðslunni þar sem óskað er eftir stuðningi til að kaupa hreyfil í landgræðsluflugvélina. Stjórnin samþykkir kr. 150.000.- sem tekið verður af liðnum „sérstök verkefni“.
3. Endurbætur á þjóðveginum Hafnir – Reykjanes (framhald frá síðasta fundi) Samþykkt að skrifa þingmönnum kjördæmisins bréf þar sem skorað er á þingmenn að tryggja fjármagn til að ljúka við að leggja bundið slitlag á þjóðveginn Hafnir – Reykjanes.
4. Viðræður við AS og FSS.
Málið rætt.
Ákveðið að Jónína Guðmundsdóttir sitji ekki lengur í viðræðuhópi Þar sem formaður S.S.S. er nú úr Keflavík. Er það gert í samráði við Jónínu.
5. Umræður um sameiginleg mál, dagskrá stjórnarfunda og fl.
Samþykkt að hafa fastan lið á dagskrá hvers fundar „umræður um sameiginleg mál“.
Finnbogi Björnsson og Sigurður Valur Ásbjarnarson véku af fundi vegna annars fundar.
6. Fundargerð Bláfjallanefndar frá 3/11 1993 ásamt rekstraráætlun 1994 og tillögum um framkvæmdafé. Lagt fram.
Áætlun og tillögum vísað til fjárhagsnefndar S.S.S.
7. Fundargerð Menningarnefndar Suðurnesja frá 10/11 1993. Lögð fram.
8. Fundargerð fjárhagsnefndar S.S.S. frá 22/11 1993. Samþykkt.