fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

397. fundur SSS 25. janúar 1996

 Árið 1996 er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum fimmtudaginn 25. janúar kl. 15.00.

Mætt eru:  Óskar Gunnarsson, Sigurður Ingvarsson, Drífa Sigfúsdóttir, Hallgrímur Bogason, Jón Gunnarsson, Guðjón Guðmundsson  framkv.stj. og Jóhanna María Einarsdóttir ritari.

Dagskrá:

1. Tillaga fjárhagsnefndar S.S.S. að fjárhagsáætlunum sameiginlega rekinna stofnana fyrir árið 1996.  Fyrri umræða.
Sigurður Jónsson og Jón Gunnar Stefánsson fulltrúar í Fjárhagsnefnd S.S.S. sátu fundinn undir þessum lið.  Formaður kynnti tillögurnar og lagði fram fundargerðir Fjárhagsnefndar S.S.S. 120. – 129. fundar.  Fjárhagsáætlun rædd og henni vísað til seinni umræðu sem verður 1. febrúar.  Sigurður Ingvarsson og Jón Gunnar Stefánsson véku af fundi.

2. Bréf dags. 3/1 1996 frá Sigurði Jónssyni sveitarstjóra Gerðahrepps ásamt reglum um álagningu gjalda fyrir árið 1996.  Lagt fram.

3. Bréf dags. 8/1 1996 frá Landvernd varðandi friðun og landgræðslu á Reykjanesskaga.  Sams konar bréf sent sveitarfélögunum.  Lagt fram.

4. Bréf dags. 11/1 1996 frá Umhverfisráðuneytinu varðandi starfsrækslu  náttúrustofu í Reykjaneskjördæmi.  Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

5. Bréf (afrit) dags. 1/11 1995 frá Hjalta Jóhannessyni framkv.stjóra Eyþings ásamt fylgiskjali, varðandi starfslok fræðsluskrifstofa.  Lagt fram.
Einnig var lagt fram bréf um yfirfærslu grunnskólakostnaðar frá ríki til sveitarfélaga.

6. Fundargerð Launanefndar S.S.S. frá 8/1 1996 lögð fram og samþykkt.

7. Fundargerð Starfskjaranefndar S.S.S. og S.F.S.B.frá 18/1 1996 lögð fram og samþykkt.

8. Uppgjör vegna atvinnuþróunarmála 1995.
Ákveðin hugmynd rædd og tillaga þar að lútandi verður lögð fram á næsta fundi.

9. Sameiginleg mál.
Ákveðið að bjóða sveitarstjórnarmönnum af höfuðborgarsvæðinu í heimsókn 8. mars n.k.

Rætt um að S.S.S. standi fyrir fundi um almenningssamgöngur milli sveitarfélaganna og flugvallarsvæðis.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.25.