fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

55. fundur Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja

55. fundur

55. fundur Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja haldinn fimmtudaginn 13. nóvember 2025, kl. 16:00. Fundurinn er haldinn í fundarsal Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbæ.

Mætt eru: Eysteinn Eyjólfsson, Björn Ingi Edvardsson, Hera Sól Harðardóttir, Karl Alvarsson, Guðrún P. Ólafsdóttir, Elísabet Bjarnadóttir, Ingþór Guðmundsson, Lilja Ósk Sigmarsdóttir, Davíð Viðarsson, Jón Ben. Einarsson, Kjartan Már Kjartansson, Gunnar K. Ottósson, skipulagsráðgjafar Anna Sóley Þorsteinsdóttir og Stefán Gunnar Thors, sem og Berglind Kristinsdóttir sem jafnframt ritaði fundargerð.

Forföll boðuðu: Einar Jón Pálsson og Magnús Stefánsson.

Eysteinn Eyjólfsson formaður setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.

Dagskrá:

  1. Tillaga að endurskoðuðu Svæðisskipulagi Suðurnesja – athugun Skipulagsstofnunar.

Nefndin fór yfir ábendingar Skipulagsstofnunar og uppfærði tillögu þar sem það átti við í samræmi við umræður nefndarinnar.

Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja samþykkir samhljóða að senda uppfærða tillögu að Svæðisskipulagi Suðurnesja 2024–2040 í opinbera auglýsingu, í samræmi við 24. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

  • Beiðni um umsögn vegna breytingar á aðalskipulagi, Reykjanesbraut. Mál nr. 1406/2025 https://skipulagsgatt.is/issues/2025/1406
    Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja gerir ekki athugasemd við skipulags- og matlýsingu að breytingu á aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2020-2035, sem fjallar um fyrirhugaða tvöföldunar Reykjanesbrautar.
  • Skýrslan Hvítá til Hvítá, verkefni unnið af Nordic Office of Architecture fyrir SSH (áhersluverkefni Sóknaráætlunar 2024).
    Lagt fram til kynningar.

4.   Önnur mál.

Ekki fleiri mál færð til bókar og fundi slitið kl. 17:15.